flugfréttir
Malaysia sagt ætla að panta 20 Airbus A330neo breiðþotur

Airbus A330 breiðþota frá Malaysia Airlines
Malaysia Airlines er sagt ætla að festa kaup á tuttugu A330neo breiðþotum sem ætlað er að leysa af hólmi eldri þotur í flota flugfélagsins.
Malaysia Airlines hefur 21 breiðþotu í flotanum af gerðinni Airbus A330, sex af gerðinni Airbus A330-200 og fimmtán
af gerðinni A330-300 sem fara úr flotanum á næstu árum og munu þá víkja fyrir Airbus A330neo.
Fram kemur að flugfélagið muni taka helmingin af þotunum á leigu á meðan hinn helmingur
þotnanna verður pantaðar beint frá Airbus en von er á tilkynningu frá Malaysia Airlines fljótlega
varðandi pöntunina.
Flugfloti Malaysia Airlines samanstendur af blöndu af þotum frá Boeing og Airbus en meðalaldur
Airbus A330 breiðþotnanna í flotanum eru frá 10 árum upp í 13.5 ár.
Meðal annarra flugvéla sem félagið á von á að fá afhentar á næstunni eru 50 Boeing 737 MAX þotur, 40 af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og tíu af gerðinni 737 MAX 10.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.