flugfréttir

Segir að tími hræódýrra flugfargjalda sé á enda

12. ágúst 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:17

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að tími hræódýrra flugfargjalda sé liðinn og muni það núna heyra sögunni til að hægt sé að bóka flug fyrir aðeins 10 evrur aðra leiðina.

O´Leary sagði í útvarpsviðtali á BBC Radio að þetta verður ekki lengur raunveruleiki þar sem verð á þotueldsneyti er orðið það hátt að ógjörningur sé lengur fyrir flugfélög að bjóða upp á slík verð og gerir hann ráð fyrir að meðalverð á flugmiða eigi eftir að hækka úr 40 evrum (5.600 krónum) upp í 50 evrur (7.000 krónur) á næstu fimm árum.

„Það er alveg ljóst að þessi ofurlágu flugfargjöld þar sem verið var að auglýsa flug fyrir 0.09 eða 9.99 evrur sé eitthvað sem við eigum ekki eftir að sjá lengur“, segir O´Leary.

„Á sama tíma og eldsneytisverð er að hækka þá er kostnaður fyrir fjölskyldur við að lifa einnig orðinn hærri“, segir O´Leary, sem tekur einnig fram að hann eigi ekki von á því að þetta muni hafa áhrif á aukningu á farþegum á næstu árum en þess í stað mun ferðamynstur fólka breytast.

Þótt svo að það sé langt í frá að Ryanair hafi sloppið við áhrifin af heimsfaraldrinum þá er Ryanair það flugfélag sem notið hefur mestu velgengni í Evrópu eftir faraldurinn en O´Leary segir að ástæðan fyrir því sé bæði „heppni og hugrekki“ í kjölfar ráðningar á fleiri áhafnarmeðlimum og flugmönnum í nóvember í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga