flugfréttir
SAS fær 96 milljarða króna lán til þess að styrkja reksturinn
Flugvélar SAS á flugvellinum í Kaupmannahöfn
Flugfélagið SAS (Scandinavian Airlines) hefur tryggt sér brúarlán upp á 96 milljarða frá fyrirtækinu Apollo Global Management til þess að endurfjármagna rekstur félagsins.
Með láninu ætlar SAS einnig að uppfylla kröfur félagsins vegna
Chapter 11 gjaldþrotameðferðarinnar og þá mun þetta auðvelda félaginu að halda sínu striki og styðjast áfram við SAS Forward rekstaráætlunina.
SAS á von á að fá samþykki fyrir brúarláninu frá gjaldþrotadómstóli um miðjan næsta
mánuð og fær félagið helminginn greiddan þá og hinn helminginn þegar félagið hefur
náð að uppfylla önnur skilyrði síðar.
SAS segir að brúarlánið muni til að mynda tryggja lendingarpláss á flugvöllum á borð
við London Heathrow, leigusamninga á flugvélum og hreyflum auk annarra atriða.
Mögulega myndi Apolli breyta láninu síðar í hlutafé í SAS og kemur til greina að
danska ríkisstjórnin kaupi svo þann hlut til þess að auka eigið fé flugfélagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.