flugfréttir
CAE og Qantas gera samning um nýtt þjálfunarsetur í Sydney

Qantas og CAE gera ráð fyrir að taka í notkun nýja þjálfunarsetrið árið 2024
Flugþjálfunarfyrirtækið CAE og ástralska flugfélagið Qantas hafa undirritað samning um nýtt þjálfunarsetur sem mun rísa í Sydney í Ástralíu.
Nýja þjálfunarsetrið verður staðsett nálægt flugvellinum í Sydney og er gert ráð fyrir að þar verður
hægt að þjálfa 4.500 nýja flugmenn fyrir Qantas og Jetstar frá og með árinu 2024.
CAE mun sjá um rekstur flugþjálfunarsetursins fyrstu 15 árin og er stefnt á að þar verði staðsettir
átta flughermar fyrir Airbus Airbus A320, A330, A350 og A380 og Boeing 737-800 og Dreamliner.
Flugstjórar frá Qantas og Jetstar munu halda utan um þjálfunina á meðan CAE mun viðhalda
flughermunum og sjá um daglegan rekstur.

Tölvugerð mynd af nýja þjálfunarsetrinu
Frá árnu 2021 hefur þjálfunin farið fram í Brisbane og í Melbourne en að öðru leyti hefur
Qantas þjálfað flugmenn sína og áhafnir í Sydney í yfir meira en hálfa öld og er áætlað að þjálfunin
færist aftur yfir til Sydney eftir tvö ár.
„Sydney verður fyrsta borgin sem Qantas mun hefja beint flug frá til London og New York og verður
Sydney því heimavöllur er kemur að þjálfun á Airbus A350 þoturnar sem munu fljúga þessi flug frá og
með árinu 2025“, segir Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.