flugfréttir

CAE og Qantas gera samning um nýtt þjálfunarsetur í Sydney

17. ágúst 2022

|

Frétt skrifuð kl. 12:46

Qantas og CAE gera ráð fyrir að taka í notkun nýja þjálfunarsetrið árið 2024

Flugþjálfunarfyrirtækið CAE og ástralska flugfélagið Qantas hafa undirritað samning um nýtt þjálfunarsetur sem mun rísa í Sydney í Ástralíu.

Nýja þjálfunarsetrið verður staðsett nálægt flugvellinum í Sydney og er gert ráð fyrir að þar verður hægt að þjálfa 4.500 nýja flugmenn fyrir Qantas og Jetstar frá og með árinu 2024.

CAE mun sjá um rekstur flugþjálfunarsetursins fyrstu 15 árin og er stefnt á að þar verði staðsettir átta flughermar fyrir Airbus Airbus A320, A330, A350 og A380 og Boeing 737-800 og Dreamliner.

Flugstjórar frá Qantas og Jetstar munu halda utan um þjálfunina á meðan CAE mun viðhalda flughermunum og sjá um daglegan rekstur.

Tölvugerð mynd af nýja þjálfunarsetrinu

Frá árnu 2021 hefur þjálfunin farið fram í Brisbane og í Melbourne en að öðru leyti hefur Qantas þjálfað flugmenn sína og áhafnir í Sydney í yfir meira en hálfa öld og er áætlað að þjálfunin færist aftur yfir til Sydney eftir tvö ár.

„Sydney verður fyrsta borgin sem Qantas mun hefja beint flug frá til London og New York og verður Sydney því heimavöllur er kemur að þjálfun á Airbus A350 þoturnar sem munu fljúga þessi flug frá og með árinu 2025“, segir Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga