flugfréttir
Ryanair fjölgar flugferðum í vetur á meðan BA fækkar þeim

Ryanair mun bæta 1 milljón flugsæta við flugáætlun sína í vetur
Írska lágfargjaldafélagið Ryanair ætlar að bæta við 1 milljón sætum við upphaflega vetraráætlunina sína til og frá flugvöllum í Bretlandi.
Á sama tíma ætlar British Airways að daga saman seglin í vetur og aflýsa 8 prósent af fyrirhuguðum
flugferðum eða sem nemur 10.000 flugferðum vegna þeirra vandamála sem hafa varað
í allt sumar á Heathrow-flugvellinum í London og sér ekki enn fyrir endann á sem rakið
er til skorts á starfsfólki.
Ryanair sér fram á að 166,5 milljónir farþega eigi eftir að fljúga með flugfélaginu á þessu
ári eða einni og hálfri milljón fleiri farþegar en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir sem hljómaði upp
á 165 milljón farþega.
„Á meðan British Airways er að aflýsa 8% af flugáætlun sinni vegna skorts á starfsfólki á Heathrow þá ætlar Ryanair
að bæta við 1 milljón flugsæta í vetur og verður flugáætlunin enn stærri en nokkru sinni fyrr og geta Bretar því bókað
flug og verið öruggir um að fluginu verði ekki aflýst og komist hjá því að fara um Heathrow-flugvöll“, segir Michael O´Leary,
framkvæmdarstjóri flugfélagsins.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.