flugfréttir
Fjögurra hreyfla þotur verða bannaðar í Ísrael
- Júmbó-þotur fá ekki að lenda í Tel Aviv frá og með næsta vor

Eftir 31. mars á næsta ári verða fjögurra hreyfla þotur bannaðar á ísraelskum flugvöllum
Flugmálayfirvöld í Ísrael hafa ákveðið að banna notkun júmbó-þotunnar í landinu ásamt öðrum fjögurra hreyfla flugvélum frá og með 31. mars á næsta ári á grundvelli umhverfisáhrifa og hljóðmengunnar.
Þetta var tilkynnt í gær og segir í tilkynningu að flugrekendum og flugfélögum hafi þegar verið
gert viðvart og segir meðal annars að flugfélög hafi verið látin vita að þau geti ekki flogið og
lent þotum á borð við Boeing 747 á Ben Gurion flugvellinum í Tel Aviv eftir 31. mars árið 2023.
Ríkisflugfélag landsins, El Al Israel Airlines, hafði í mörg ár haft Boeing 747 í flota sínum en félagið
flaug síðasta júmbóþotuflugið árið 2019 og notar eingöngu Boeing 777 og Boeing 787 á
löngum flugferðum í dag.
Fram kemur að fjögurra hreyfla flugvélar verði eingöngu leyfðar með undantekningum
ef um er að ræða flugferðir í sérstökum tilgangi.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.