flugfréttir
Fá leyfi frá Rússum til að skila tveimur 737 MAX þotum

Boeing 737 MAX þota í litum rússneska flugfélagsins S7 Airlines
Stjórnvöld í Rússlandi hafa gefið fyrirtækinu S7 Group leyfi til þess að skila tveimur Boeing 737 MAX til eigenda sinna en þoturnar voru í flota dótturfélagsins S7 Airlines.
Nokkrar flugvélaleigur hafa reynt að ná til baka þeim flugvélum sem hafa verið í leigu í flota
rússneskra flugfélaga eftir að viðskiptaþvingarnir voru settar á Rússa í kjölfar innrásarinnar
í Úkraínu en mörg fyrirtækjana hafa gefið upp von um að fá flugvélarnar aftur og hafa nokkrar
flugvélaleigur afskrifað virði flugvélanna.
Ríkisstjórn Rússlands hefur gefið út nokkur skilyrði fyrir því ef flugfélög í landinu ætla sér að skila
flugvélum til eigenda sinna og þarf að fá samþykki frá sérstakri nefnd sé óskað eftir því.
Flugfélagið S7 Airlines hafði tvær Boeing 737 MAX 8 þotur í flotanum sem báðar hafa verið
skráðar í Bermúda og áframleigðar til rússneska fyrirtækisins Globus í Novosibirsk.
S7 Airlines var fyrsta rússneska flugfélagið til þess að fá Boeing 737 MAX þoturnar afhentar og
tók félagið þær á leigu frá bandarísku flugvélaleigunni Air Lease í október árið 2018.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.