flugfréttir

Spá þörf fyrir tvöföldun á flugflota í Miðausturlöndum

- Boeing birtir framtíðarspá fyrir Miðausturlönd til næstu 20 ára

20. september 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:02

Frá flugvellinum í Riyadh í Sádí-Arabíu

Boeing segist eiga von á því að flugfélög í Miðausturlöndum þurfi að tvöfalda flugflota sinn á næstu 20 árum til þess að koma til móts við þá eftirspurn sem framundan er í fluginu næstu tvo áratugina.

Boeing hefur birt nýja spá er varðar eftirspurn eftir flugsætum í Miðausturlöndum til ársins 2041 og sér flugvélaframleiðandinn fram á að flugfélög á þessu svæði þurfi að leggja inn pöntun í 3.400 nýjar flugvélar til að mæta eftirspurninni.

„Miðausturlönd er mjög vinsælt svæði er kemur að tengiflugi meðal farþega í millilandaflugi til Asíu auk þess sem vinsældir meðal áfangastaða á þessu svæði eiga eftir að aukast bæði er kemur að viðskiptaferðum og skemmtiferðum“, segir Randy Heisey hjá Boeing.

Heisey telur að flugfélög í Miðausturlöndum þurfi að minnsta kosti 2.980 nýjar flugvélar að andvirði 765 milljarða Bandaríkjadala sem samsvarar 108 þúsund milljörðum króna og myndi 2/3 af þeim flugvélum tilheyra stækkun flugflota á meðan 1/3 af flugvélunum væru að leysa eldri flugvélar af hólmi.

Flugfélög í Miðausturlöndum hafa nú þegar fjárfest í auknum umsvifum og stækkun á flota og hefur Emirates til að mynda fjárfest fyrir 2 milljarða Bandaríkjadali í innréttingum á flugvélum til að bæta upplifun farþega á meðan Saudi Arabian Airlines hefur varið 30 milljörðum dölum í stofnun nýs dótturflugfélags.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga