flugfréttir
FedEx sker niður og fækkar fraktþotum í flotanum
- Samdráttur í fraktflugi eftir mikinn uppgang í heimsfaraldrinum

Boeing 757F fraktþotur frá FedEx Express á flugvellinum í Louisville í Kentucky
Bandaríski vöruflutningarisinn FedEx hefur ákveðið að leggja nokkrum fraktflugvélum og draga úr tíðni í leiðarkerfinu vegna samdráttar í eftirspurn eftir vöruflutningaflugi.
FedEx segir að það sem spilar helst inn í sé samdráttur á mörkuðum í Asíu og krefjandi
efnahagsumhverfi í Evrópu en afkoma FedEx Express á tímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst
dróst saman um 70 milljarða króna.
FedEx hefur ákveðið að bregðast við með niðurskurði í leiðarkerfi og minni tíðni
og verða einhverjar flugvélar settar í geymslu tímabundið.
Þessar aðgerðir koma í kjölfar mikils uppgangs sem var í vöruflutningaflugi í
tengslum við heimsfaraldurinn en þar sem hann er nú afstaðinn þá hefur dregið
örlítið úr vöruflutningaflugi á sama tíma og farþegaflug hefur aukist.
Raj Subramaniam, nýskipaður framkvæmdarstjóri FedEx, segir að fyrirtækið hafi
ákveðið að bregðast við þessum „mótvindi“ þar sem afkoman var verri en vonir gerðu ráð fyrir.
FexEd hefur ekki gefið upp hversu margar flugvélar til stendur að leggja
en hlutabréf í fyrirtækinu dróust saman um 20% í kjölfar þessara frétta.
Fyrirtækið hefur gríðarlega stóran flugflota og eru um 675 flugvélar staðsettar á heimavelli FedEx í Louisville í Kentucky og samanstendur flotinn af fraktþotum af gerðinni Boeing 777F, McDonnell Douglas MD-10F, MD-11F, Boeing 767F, Boeing 757F, Airbus A330-600F, ATR og Cessna Caravan.


4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.