flugfréttir
Uggvænlegt að engar risaþotur verði á flugi innan nokkurra ára
- Ekki hægt að sinna eftirspurninni með engar A380 né júmbó-þotur
Tim Clark, forstjóri Emirates
Tim Clark, forstjóri Emirates, telur brotthvarf risaþoturnnar Airbus A380 eigi eftir að verða til þess að þau flugfélög sem voru með hana í flotanum eigi eftir að lenda í þeim vandræðum að þau eigi ekki eftir að geta annað þeirri eftirspurn sem framundan er í fluginu á næstu árum og eigi það eftir að hækka flugfargjöld.
„Flugfélög munu ekki getað annað eftirspurninni í framtíðinni með þeim flugvélum sem þau
hafa í flotanum í dag. Hvernig ætla það að fara að því? - Þau munu neyðast til að
hækka verðið og það verður gríðarlega dýrt að fljúga eftir nokkur ár“, segir Tim Clark.
Clark tekur fram að hann sé að tala um kringum árið 2040 og telur að þá myndi
risaþotan Airbus A380 koma sér vel en mörg flugfélög hafa hætt með hana eða
gera ráð fyrir að risaþotan fari úr flota sínum á næstu árum.
Clark nefnir að Emirates sérhæfi sig í að fljúga miklum fjölda farþega á milli stærstu
borgir heimsins og tekur hann sem dæmi að flugfélagið fljúgi 8 ferðir á dag á milli
London og Dubai.
„Við vorum vön því að hafa þessar æðislegu flugvélar“, segir Clark og tekur fram
að Airbus hafi hætt að framleiða Airbus A340 breiðþotuna árið 2012, hætt framleiðslu
á risaþotunni A380 árið 2021 og svo er júmbó-þotan gott sem horfin af markaðnum
í farþegaflugi.
Ekki eru mörg ár síðan að flugfélög voru bæði að fljúga Boeing 747 og Airbus A380 en slíkar breiðþotur fer nú fækkandi og munu þær hverfa í farþegaflugi með sama áframhaldi
Heimsfaraldurinn flýtti svo fyrir því að flugfélög tóku stórar farþegaþotur úr flota sínum
og hafa mörg flugfélög brugðið á það ráð að panta fleiri meðalstórar flugvélar með
einum gangi.
Airbus A350 og Boeing 777 séu ekki nógu stórar
Á meðan sumar stofnanir innan flugsins gera enn ráð fyrir því að flugheimurinn muni
ekki ná sömu hæðum og var árið 2019 fyrir heimsfaraldurinn fyrr en árið 2026
þá spáir Clark því að það eigi eftir að gerast mun fyrr og að farþegaflug eigi eftir að
aukast um allt að 6% á hverju ári núna á næstu árum.
„Ef það gerist þá mun flugiðnaðurinn þurfa á muni stærri flugvélum á að halda heldur
en Airbus A350 og Boeing 777“, segir Clark og tekur sem dæmi að plássleysi á flugvöllum
mun auka það vandamál enn frekar.
Clark telur að það hafi verið mistök hjá Airbus að hætta framleiðslu risaþotunnar
og hefur ítrekað við flugvélaframleiðandann evrópska að koma með endurbættari
útgáfu af Airbus A380 á markaðinn.
Clark segir að ef flugiðnaðurinn bregðist ekki við þessu þá sé stórt vandamál framundan - „Allur ávinningurinn sem kom á sínum tíma er júmbó-þotan kom á markaðinn með því að fljúga miklum fjölda farþega á milli heimshorna verður fyrir bí
með þessari þróun“, bætir Clark við.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.