flugfréttir
Önnur A321XLR tilraunarþotan hefur flugprófanir hjá Airbus

Airbus hefur tekið í notkun aðra A321XLR tilraunarþotuna
Airbus hefur hafið flugprófanir með annarri A321XLR tilraunarþotu sem flaug sitt fyrsta flug fyrir helgi frá Finkenwerder-flugvellinum í Hamborg til Toulouse.
Flugvélin er önnur af þeim fjórum A321XLR þotum sem munu taka þátt í flugprófunum
og er sú þota knúin áfram með Pratt & Whitney hreyflum.
Fyrstu tvær A321XLR þoturnar koma með búnaði og tækjum um borð fyrir mælingar og prófanir sem notaður
er til að gera tilraunir fyrir margvísleg atriði áður en sótt verður um flughæfnisvottun áður en þoturnar koma á markað.
Um borð er til að mynda aðstaða fyrir flugvirkja og aðra sérfræðinga auk vatnstanka
með kerfi sem dreifir þyngd um flugvélina til að líkja eftir fulllestaðri flugvél.
Tilraunarflugvélarnar fjórar koma með mismunandi tegundum af hreyflum en þeir
hreyflar sem flugfélögum standa til boða eru LEAP-1A hreyfillinn og PW1100G.
Airbus A321XLR mun verða langdrægasta farþegaþota heims í flokki þeirra sem koma með einum gangi en meðal þeirra flugfélaga sem hafa pantað A321XLR eru American Airlines, Frontier Airlines, jetBLue,
United Airlines, Wizz Air, Air Arabia auk fleiri flugfélaga.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.