flugfréttir
Finnair stefnir á að segja upp 200 starfsmönnum
Flugvélar frá Finnair á flugvellinum í Helsinki í Finnlandi
Finnair gerir ráð fyrir að segja upp um 200 starfsmönnum eftir að ný rekstaráætlun tekur gildi sem tekur mið af takmörkuðu aðgengi að leiðarkerfi félagsins til áfangastaða í Asíu.
Finnair gerir ráð fyrir að fækkað verði um 120 stöður í Finnlandi og þá verður
stjórnarmeðlimum félagsins einnig fækkað en uppsagnir munu
ekki ná til áhafna né flugmanna.
Topi Manner, framkvæmdarstjóri Finnair, segir að um mjög erfiða ákvörðun hafi verið að ræða
en þar sem Rússar hafa lokað lofthelgi sinni fyrir flugvélum frá vestrænum
löndum þá hefur reynst mjög erfitt og kostnaðarsamt að halda úti
áætlunarflugi til áfangastaða í Asíu.
Fram kemur að flugfélagið finnska ætli að draga það mikið úr tíðni
sinni til Asíu að um verður að ræða færri flugferðir en farnar voru í heimsfaraldrinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.