flugfréttir

80 nýir flugvellir bætast við á Indlandi á næstu fimm árum

3. október 2022

|

Frétt skrifuð kl. 10:12

Á síðustu 8 árum hefur flugvöllum á Indlandi fjölgað úr 74 upp í 141 flugvöll

Stjórnvöld á Indlandi gera ráð fyrir að 80 nýir flugvellir munu bætast við í landinu á næstu fimm árum til þess að mæta aukinni eftirspurn eftir flugi og fjölgun ferðamanna til landsins.

Flugmálaráðherra Indlands segir að á hverju ári fjölgi flugfarþegum um 9% og er spáð tveggja stafa tölu fjölgun árlega á næstu árum.

Á síðustu 8 árum hefur flugvöllum á Indlandi fjölgað úr 74 upp í 141 flugvöll sem þýðir að framkvæmdir hafa átt sér stað á 67 nýjum flugvöllum á Indlandi frá árinu 2014 og er talið að flugvellir landsins verði orðnir 220 talsins árið 2027.

Meðal þessara 80 flugvalla þá hafa átta verið teknir í notkun nýlega en þá flugvelli er að finna í Durgapur, Shirdi, Sindhudurg, Pakyong, Kannur, Kalaburagi, Orvakal og Kushinagar.

Flugvellirnir eru ýmist hefðbundnir flugvellir með bundnu slitlagi, flugvellir með grasbraut, þyrluflugvellir og flugvellir fyrir sjóflugvélar.

Þá gera flugmálayfirvöld ráð fyrir að efla tengiflugsmöguleika en á meðan indverskir flugvellir eru sumir á lista yfir annasömustu flugvelli heims þá eru þeir langt frá því að vera á lista yfir þá flugvelli sem bjóða upp á skjóta tengimöguleika fyrir flugfarþega og áreiðanlegar tengingar.

Jyotiraditya Scindia, flugmálaráðherra Indlands, segir að stefnan sé að útrýma þessum vandamálum á næstu árum og gerir viðamikil áætlun í flugmálum ráð fyrir að 90 flugvellir verða orðnir kolefnalausir fyrir árið 2030.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga