flugfréttir

FAA óskar eftir raunhæfri tímaáætlun varðandi 737 MAX 7

4. október 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:45

Boeing 737 MAX 7 tilraunarþota Boeing

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa óskað eftir að fá raunhæfa tímaáætlun frá Boeing varðandi það hvenær pappírar og lokaumsókn um flughæfnisvottun fyrir Boeing 737 MAX 7 þotuna verður tilbúin.

Bandarísk flugmálayfirvöld segja að Boeing sé runnið á tíma með að fá úthlutað flughæfnisvottun fyrir minnstu útgáfuna af Boeing 737 MAX þotunni og verður því ekki hægt að gefa út vottun fyrir þotuna fyrir desember sem var mikilvæg dagsetning fyrir flugvélaframleiðandann.

FAA hefur sent bréf til Mike Fleming, varaforstjóra Boeing, þar sem ítrekað er að flugmálayfirvöld hafa óskað eftir því að fá restina af niðurstöðum úr flugöryggismati („System Safety Assessments“) fyrir miðjan september ef framleiðandinn ætlar sér að ná áætlun sinni sem var að fá vottun fyrir 737 MAX 7 fyrir desembermánuð.

Þann 15. september hafði FAA fengið um 10% af flugöryggisskýrslu vegna atriða er varðar 737 MAX 7 þotuna og höfðu flugmálayfirvöld farið yfir 70% af þeim tíu prósentum.

FAA segist hafa mestar áhyggjur varðandi að Boeing hefur enn ekki gert grein fyrir sex mikilvægum þáttum sem óskað er eftir í matinu og er talið að það muni taka töluverðan tíma að fara yfir þau atriði vegna þess hversu flókin atriði er um að ræða.

Lirio Liu, yfirmaður yfir flughæfnisvottunardeild innan FAA, segir að stofnunin eigi í viðræðum við Boeing um raunhæfa tímaáætlun varðandi hvenær von sá á restinni af gögnunum.

Boeing hefur unnið hörðum höndum að því að fá útgefna flughæfnisvottun fyrir 737 MAX 7 þotunni fyrir lok ársins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga