flugfréttir
Reyna að bjóða Air India MAX þotur sem áttu að fara til Kína

Um er að ræða allt að 140 Boeing 737 MAX þotur sem til stóð að afhenda til flugfélaga í Kína
Sagt er að Boeing reyni nú að losa sig við nýjar Boeing 737 MAX þotur til indverska flugfélagsins Air India en þoturnar voru upphaflega smíðaðar fyrir kínversk flugfélög.
Fram kemur að Boeing reyni nú að gera Air India tilboð í þoturnar en
allt að 140 Boeing 737 MAX þotur hafa safnað ryki vestanhafs sem
til stóð að afhenda til flugfélaga í Kína
en það hefur gengið erfiðlega vegna viðskiptadeilna milli Kína og Bandaríkjanna.
Tata Group, móðurfélag Air India, hefur átt í viðræðum bæði við flugvélaleigur
og flugvélaframleiðendur vegna endurnýjun á flugflota og er talið að Boeing hafi
séð með þessu tækifæri til að koma 737 MAX þotunum í sölu.
Samkvæmt fréttaveitunni Bloomberg þá kemur fram að skilmálar Boeing
séu að þoturnar verða afhentar eins og þær eru sem þýðir að Air India myndi sjá
um að mála þær í litum flugfélagsins og koma fyrir sínum eigin innréttingum og sætum.
Fram hefur komið að Air India sækist eftir því að panta allt að 300 meðalstórar þotur
sem koma með einum gangi og hafa viðræður meðal annars staðið yfir bæði
við Boeing og Airbus.
Air India hefur í dag 68 þotur af Airbus-gerð og 43 breiðþotur af gerðinni Boeing 777
og Boeing 787.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.