flugfréttir

Hefja þjálfun flugmanna með sýndarveruleikatækni frá Airbus

9. nóvember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 14:07

Lufthansa Group verður fyrsti viðskiptavinurinn til þess að hefja þjálfun flugmanna með sýndarveruleikatækninni frá Airbus

Lufthansa Group mun á næstunni taka við nýrri tækni þar sem hægt verður að þjálfa áhafnir á farþegaþotur í flota dótturfélaganna með aðstoð sýndarveruleika.

Sýndarveruleikabúnaðurinn er þróaður af Airbus og er ætlunin að flugmenn geti gengist undir þjálfun á nýjar Airbus-þotur án þess að nota flugherma eða annan álíka þjálfunarbúnað.

Airbus segir að með búnaðinum þá „hverfa“ flugmenn inn í kunnuglegt stjórnklefarými með þrívíddargleraugum sem leyfir þeim að fá raunverulega nálgun á öll stjórntæki, rofa, takka og annað sem er að finna í flugstjórnarklefanum.

Þá segir að með sýndarveruleikaþjálfun geti flugmenn æft endurtakanlegar aðgerðir og byggt upp „aðgerðarminni“ og þjálfað þekktar aðgerðir sem er hluti að stöðluðum verkferlum hjá Airbus.

Fyrst um sinn verður búnaðurinn í boði fyrir þjálfun á Airbus A320 þoturnar

Gilad Scherpf, þróunarstjóri í þjálfunardeild Airbus, segir að nýi búnaðurinn verður fyrst um sinn notaður til þess að þjálfa þá flugmenn sem fljúga flugvélum af gerðinni Airbus A320.

Þá segir Scherpf að náið verði fylgst með niðurstöðum og árangri úr þjálfun sem flugmenn hljóta með sýndaveruleikabúnaðinum og gögnum safnað saman til að undirbúa samþykktir frá flugmálayfirvöldum.

Fabrice Hamel, varaformaður í flugrekstardeild Airbus, segir að búnaðurinn hafi þegar sýnt fram á að flugmenn séu að ná tökum á þjálfun með skilvirkum árangri með nýja búnaðinum.

Hamel segir að þessi tækni gæti orðið til þess að hægt verði að stytta þjálfunartíma flugmanna hvort sem þeir eru við þjálfun einir eða tveir í fjölstjórnarumhverfi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga