flugfréttir

Flugmenn sem fljúga loftbelgjum þurfa núna heilbrigðisskírteini

17. nóvember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 15:14

Sama krafa verður gerð til heilbrigðis meðal flugmanna sem fljúga loftbelgjum vestanhafs og hjá þeim sem eru í atvinnuflugi

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa breytt reglugerð er varðar loftbelgi og þurfa flugmenn sem fljúga þeim núna að verða sér út um heilbrigðistvottorð ef þeir ætla sér að fljúga með farþega gegn greiðslu.

Flugmenn loftbelgja hafa hingað til verið undanþegnir heilbrigðisvottorði vestanhafs en héðan í frá verða sömu heilbrigðiskröfur gerðar til þeirra og um væri að ræða flugmann sem flýgur atvinnuflug.

Kallað var eftir aðgerðum á sínum tíma í kjölfar slyss sem átti sér stað í Texas árið 2016 þegar loftbelgur brotlenti með þeim afleiðingum að 16 manns létu lífið.

Um var að ræða eitt mannskæðasta flugslys í sögu Bandaríkjanna er kemur að loftbelgjum og kom í ljós að flugmaður loftbelgsins var undir áhrifum ýmissa lyfja og greindist í blóði hans meðal annars oxycontin, rídalín auk fleiri lyfja.

Í kjölfarið tók FAA viðamikið skref til þess að fyrirbyggja sambærileg slys og til þess að auka öryggi er kemur að starfrækslu loftbelgja í samstarfi við loftbelgjasamtök Bandaríkjanna.

Var gerð tillaga árið 2018 um að krafa væri gerð um heilbrigðisvottorð meðal flugmanna sem fljúga loftbelgjum og rataði sú tillaga inn á bandaríska þingið og var sú tillaga samþykkt í vikunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga