flugfréttir

Air India herðir kröfur um útlit meðal áhafna

- Flugfreyjur og flugþjónar mega ekki hafa skallabletti eða grá hár

27. nóvember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 22:28

Flugfreyjur og flugþjónar hjá Air India

Air India hefur kynnt nýjar kröfur sem flugfreyjur og flugþjónar flugfélagsins indverska þurfa að uppfylla ef þau ætla að starfa áfram hjá félaginu.

Tata Group, nýtt móðurfélag Air India, segir að flugfélagið hafi ekki verið nægileg duglegt við að uppfylla kröfur meðal starfsfólks um borð í flugvélunum og hafi ímynd félagsins setið á hakanum um nokkurt skeið.

Meðal þeirra skilyrða sem farið er fram á varða snyrtimennsku og útlit og segir að flugfreyjur og flugþjónar skulu ekki vera með neina skallabletti á höfði og ekki nein grá hár sýnileg.

Fram kemur að flugþjónar skulu annað hvort fela skallabletti eða raka sig skollótta samkvæmt nýjum viðmiðunarreglum og þá segir að grá hár verði ekki liðin héðan í frá sem á bæði við flugfreyjur og flugþjóna sem verða núna að fela grá hár með háralit.

Fyrir flugfreyjur þá er ekki sama hvaða háralit þau velja þar sem ljóst hár er bannað og er bent á viðeigandi litakort þar sem tíundaðir eru þeir háralitir sem í boði eru.

Þá skulu flugfreyjur, sem kjósa að hafa hárið í hnút, gæta þess að hnúturinn sé ekki of stór auk þess sem frekari fyrirmæli um hárgreiðslu hafa verið gefin út.

Þá verða flugfreyjur og flugþjónar eingöngu að vera með einfalda hringi á fingrum sem eru annaðhvort úr silfri eða gulli og mega hringarnir ekki innihalda neina steina og vera lausir við merki eða einhverja yfirgnæfandi hönnun.

Athygli vekur að á meðan mörg flugfélög hafa slakað á kröfum um klæðaburð meðal flugfreyja og flugfreyja þá hefur Air India hert kröfur varðandi útlit og fatnað.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Air India kemst í fréttirnar varðandi kröfur fyrir flugfreyjur og flugþjóna en árið 2013 gaf flugfélagið frá sér yfirlýsingu þar sem flugliðar höfðu 3 mánuði til þess að koma sér í form og var þeim gefin sá kostur að taka sér frí í 12 vikur til að koma sér í form og mæta til baka þegar að árangri hafi verið náð.

"Þeir sem hafa ekki náð að koma sér í form eftir þrjá mánuði munu ekki fá að starfa meira um borð í vélum Air India og verður þeim boðið starf á jörðu niðri", sagði talsmaður Air India fyrir níu árum síðan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga