flugfréttir

Verkfall yfirvofandi hjá Air Greenland

28. nóvember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 08:25

Airbus A330 breiðþota frá Air Greenland

Verkfall er yfirvofandi hjá Air Greenland en ef samningar nást ekki við flugfreyjur og flugþjóna félagsins mun verkfall að öllu óbreyttu skella á næstkomandi föstudag.

Flugfreyjufélag Danmerkur (FPU) hefur sent viðvörun til stjórn Air Greenlands þar sem varað er við því að flugliðar félagsins munu leggja niður störf sín frá og með
2. desember ef samningar nást ekki.

Sérstakur fundur mun fara fram á morgun milli FPU og stjórnar flugfélagsins þar sem reynt verður að komast til lausn í málinu en seinasti fundur fór fram í október og lauk honum án árangurs.

„Ef stjórnendur Air Greenland eru reiðubúnir í að ræða við okkur með öðruvísi viðmóti en við höfum fengið hingað til þá er ég viss um að við eigum eftir að ná einhverri niðurstöðu“, segir Anders Mark Jensen hjá FPU.

Helsta hitamálið í deilunni eru vaktatímar en flugfreyjur og flugþjónar fara fram á sveiganlegri vinnutíma og fleiri hvíldartíma milli vakta.

Jacob Nitter Sørensen, framkvæmdarstjóri Air Greenland, bendir á að starfsfólk félagsins verði einnig að koma til móts við ýmsa þætti sem flugfélagið hefur greint frá og bendir hann á að flugfélagið verði að standa sig betur í samkeppni við önnur flugfélög.

Bendir Sørensen á að Air Greenlands sé tilbúið að koma til móts við kröfur starfsmanna er snýr að launahækkun en með því skilyrði að fá aukið vinnuframlag frá starfsfólki en það stangast á við kröfur starsmanna sem óska eftir að fá meiri sveiganleika er kemur að vöktum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga