flugfréttir
Kemur ekki á óvart að Boeing hafi engin áform um nýja flugvél
Christian Scherer, aðalviðskiptastjóri Airbus
Christian Scherer, aðalviðskiptastjóri Airbus, segir að það hafi ekki komið flugvélaframleiðandanum á óvart að Boeing hafi lýst því yfir að það sé ekki von á neinni nýrri flugvélategund þar á bæ næstu árin.
David Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing, sagði í byrjun nóvember á fundi með
fjárfestum að það væri engar viðræður í gangi um þróun á nýrri farþegaþotu
og ekki væri von á því í bráð.
„Ummæli Calhoun koma okkur ekki á óvart og sérstaklega í ljósi þess að þau
koma frá framkvæmdarstjóra hjá fyrirtæki sem hefur safnað mjög mikið af skuldum“, sagði
Scherer er hann ræddi við fjölmiðla í Munchen í gær.
„Samanlagt er pöntunarlisti á Airbus A320neo og Boeing 737 MAX komin upp í
10.000 þotur og ég efast um að Boeing vill segja viðskiptavinum sínum að í náinni
framtíð ætli þeir að hefja framleiðslu á nýrri þotu“, segir Scherer.
Antoine Bouvier, yfirmaður hjá stefnumótunardeild Airbus, tók fram í gær
að Airbus sé hinsvegar að horfa til framtíðar og sé framleiðandinn að fjárfesta
í næstu kynslóð flugvéla, hvers sem hún verður. Scherer tók fram að líklega
eigi Airbus eftir að kynna nýja farþegaþotutegund um miðjan næsta áratug.
Scherer nefnir að um 80% af mörkuðum í flugheiminum hafa endurheimt það
sem þau höfðu fyrir heimsfaraldurinn fyrir utan Kína og segir hann að Airbus
hafi ekki séð áhrifin af „dimmum skýjum á sjóndeildarhringnum“ á borð
við hækkandi verð á þotueldsneyti, verðbólgu eða erfiðleikum á mörkuðum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.