flugfréttir

Airbus hættir að kaupa títaníum af Rússum

- Flókið ferli að finna annan birgja

1. desember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:55

Mestmegnið af því títaníumi sem Airbus hefur keypt hingað til kemur frá rússneska fyrirtækinu VSMPO-Avisma

Airbus mun hætta að kaupa títaníum af Rússum og mun síðasta sendingin af þessu hráefni berast frá Rússlandi á næstu mánuðum en eftir það mun flugvélaframleiðandinn skipta um birgja.

Michael Schoellhorn, framkvæmdarstjóri Airbus Defense & Space, greindi frá þessu á ráðstefnunni Airbus Summit 2022 í Munchen í morgun og tók hann fram að ferlið við að losa sig undan viðskiptum við Rússa væri í fullum gangi.

„Klárlega þá er stefnan hjá okkur að vera ekki lengur háðir rússnesku títaníumi og við erum í ferli að hætta öllum viðskiptum okkar við Rússa“, segir Schoellhorn sem tekur fram að slíkt hið sama séu önnur vestræn fyrirtæki einnig að gera sem eru í iðnaði er snýr að varnarmálum.

Schoellhorn tekur fram að það sé hinsvegar frekar flókið ferli að finna nýja birgja og fá vottun á þá vegna þess hversu strangar reglugerðir eru í flugiðnaðinum.

Airbus hafði áður þrýst á Evrópusambandið til þess að gera undanþágu á viðskiptabanninu við Rússa er kemur að rússneskum birgjum með títaníum á þeim forsendum að það gæti haft áhrif á flugvélaiðnaðinn.

Stærsti hluti af því títaníumi sem Airbus kaupir kemur frá fyrirtækinu VSMPO-Avisma sem er hluti af Rostec samsteypunni.

Schoellhorn segir að innrásin Rússa í Úkraínu hefur gert evrópska framleiðendur tilneydda til þess að endurskoða þá birgja sem þeir versla við og finna leiðir til þess að vera ekki háðir einum aðila eingöngu.













  fréttir af handahófi

Valletta Airlines sækir um leyfi fyrir flugi til Bandaríkjanna

20. febrúar 2023

|

Maltneska flugfélagið Valletta Airlines hefur sótt um leyfi til þess að hefja flug til Bandaríkjanna.

FedEx að hætta með MD-10F

12. janúar 2023

|

Vörufluttningaflugfélagið FedEx Express er að öllum líkindum hætta að nota McDonnell Douglas MD-10F fraktþoturnar en til stóð að hætta með þær snemma á þessu ári.

Fjölda aflýstra flugferða hjá Southwest óásættanlegt

27. desember 2022

|

Samgönguráðuneyti Bandaríkjanna segir að það sé ekki viðunandi sá fjöldi flugferða sem að flugfélagið Southwest Airlines aflýsti vegna kuldakastsins sem reið yfir vestanhafs yfir jólin.

  Nýjustu flugfréttirnar

Starfsemi Asia Pacific stöðvað vegna annmarka í þjálfun flugmanna

21. mars 2023

|

David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

Bluebird Nordic stefnir á flugrekstarleyfi í Slóvakíu

21. mars 2023

|

Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

Flugmaður hjá BA lést á hóteli rétt fyrir brottför til London Heathrow

21. mars 2023

|

Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

Flair höfðar mál gegn flugvélaleigu

20. mars 2023

|

Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

City Airlines nýtt dótturfélag Lufthansa

20. mars 2023

|

Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

AirBaltic tekur á leigu fjórar Airbus A320 þotur

20. mars 2023

|

Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

Bannað að þjónusta rússneskar Boeing-þotur í Tyrklandi

17. mars 2023

|

Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

FAA fer fram á 25 tíma upptöku úr hljóðritum

17. mars 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.

Atlas Air varar við skorti á framboði í fraktfluginu

15. mars 2023

|

Bandaríska fraktflugfélagið Atlas Air telur að alvarlegur skortur á stórum fraktflugvélum blasi við í heiminum á næstu árum.

Útafbrautaratvik algengasta tegund slysa meðal einkaþotna

15. mars 2023

|

Atvik þar sem flugvél fór út af flugbraut var algengasta tegund atvika og slysa meðal einkaþotna árið 2022 og það annað árið í röð.

';

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá