flugfréttir

Flugmannstaska olli því að þota læstist í handbremsu í lendingu

- Talið að beisli á flugtösku flugstjórans hafi krækst í „parking brake“ takkann

1. desember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 15:35

Atvikið átti sér stað í lendingu á flugvellinum í borginni Irkutsk í Rússlandi þann 2. nóvember síðastliðinn

Talið er að orsök þess að fjögur dekk sprungu í lendingu á farþegaþota af gerðinni Airbus A320 í Rússlandi í byrjun nóvember hafi verið sú að annar flugmaður þotunnar setti flugtöskuna sína ofan á stjórnborð og að beisli töskunnar hafi óvart náð að krækjast í handbremsu vélarinnar.

Upplýsingar varðandi orsök atviksins kemur fram í skilaboðum sem lekið var í fjölmiðla en skilaboðin komu frá Igor Bocharov, öryggisfulltrúa hjá rússneska flugfélaginu S7 Airlines, og birtust skilaboðin á Telegram-síðu Aviatorschina sem reglulega birtir upplýsingar sem leka frá rússneska flugiðnaðinum.

Atvikið átti sér stað hinsvegar hjá flugfélaginu Ural Airlines og var um að ræða áætlunarflug frá borginni Dushanbe í Tadsíkistan til Irkutsk í Rússlandi þann 2. nóvember síðastliðinn.

Samkvæmt upplýsingum á annar flugmaðurinn að hafa sett flugtöskuna sína á stjórnborðið á milli flugmannanna sem á ensku nefnist „middle console“ en þar er snúningstakka að finna sem setur flugvélina í bremsu t.a.m. þegar hún er komin að landgangi.

Skjáskot úr öryggismyndavél

Talið er að beisli töskunnar hafi krækst utan um takkann og virkjað bremsuna þegar þotan var í 40.000 feta hæð og kemur fram að flugmennirnir hafi nokkrum sinnum virkjað og aftengt bremsuna þar til að „parking brake“ ljósið var farið.

Hinsvegar hafi flugmennirnir ekki athugað stöðuna á þrýstingnum á vökvakerfinu sem virkjar bremsurnar á hjólabúnaðinum og hefðu þeir átt að fara yfir viðeigandi gátlista varðandi þær aðstæður.

Bremsuljósið kom aftur á þegar flugvélin var í að flugi í 1.400 feta hæð og tóku flugmennirnir eftir að þrýstingur var á kerfinu en aðhöfðust ekkert frekar og héldu aðfluginu áfram.

Flugvélin lenti í Irkutsk en samstundist læstust allar bremsur með þeim afleiðingum að það sprakk á öllum fjórum hjólunum á aðalhjólabúnaði vélarinnar.

Það tók 12 klukkustundir að fjarlægja þotuna af brautinni og kemur fram að skemmdir hafi orðið á yfirlagi brautarinnar og varð því að beina 14 öðrum flugvélum til annarra flugvalla.

Í yfirlýsingu frá Ural Airlines kemur fram að atvikið hafi orskast vegna bilunnar í bremsubúnaði. Þá segir á vefsíðunni Aviatorschina að það hafi verið flugstjórinn sem hafi sett töskuna á stjórnborðið og hafi hann yfirgefið flugfélagið í kjölfar atviksins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga