flugfréttir

Telja að United eigi eftir að hætta við Airbus A350

6. desember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 09:18

Tölvugerð mynd af Airbus A350 þotunni í litum United Airlines

Talið er líklegt að United Airlines eigi eftir að hætta við pöntun sína í Airbus A350 þotuna en flugfélagið bandaríska á inni pöntun hjá Airbus í 45 breiðþotur af gerðinni A350-900.

Þetta kemur fram í frétt Leeham News en þar er greint frá því að pöntunin í Airbus A350 þoturnar hafi verið gerð af þeim meðlimum sem voru við stjórn á þeim tíma sem félagið var að sameinast rekstri Continental Airlines fyrir um áratugi síðan.

Í greiningu Leeham News kemur fram að ekki sé öruggt að það verði af þessari pöntun þar sem United Airlines hefur ekki fengið neina A350 þotu afhenta þar sem meiri líkur eru sagðar á því að stjórnin eigi eftir að halda sig við Dreamliner-þoturnar í stað þess að hafa blandaðan flota af Boeing 787 og Airbus A350.

Airbus A350 hafa þó lengra flugdrægi heldur en Boeing 787 en Leeham News telur að United Airlines eigi ekki eftir að hafa þörf fyrir slíkt flugdrægi og eigi félagið því eftir að hætta við A350.

Ekki er talið að United Airlines þurfi að greiða hátt aflýsingargjald til Airbus þar sem miklar líkur eru taldar á því að flugfélagið eigi eftir að breyta pöntuninni yfir í fleiri Airbus A321neo þotur.

Ekkert bandarískt flugfélag hefur eins margar flugvélar á pöntun hjá Boeing og Airbus líkt og United Airlines sem á von á 520 þotum af gerðinni Airbus A321neo auk A321LXR, Boeing 737 MAX, Airbus A350 auk Boeing 787.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga