flugfréttir

Alvarlegt atvik á flugvellinum í Sydney til rannsóknar

- Boeing 737 fékk heimild til að þvera braut á meðan A380 fékk flugtaksheimild

8. desember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 16:35

Airbus A380 risaþota frá Singapore Airlines á Kingsford Smith flugvellinum í Sydney í Ástralíu

Flugatvik er nú til skoðunar sem átti sér stað á flugvellinum í Sydney í Ástralíu í síðasta mánuði er flugumferðarstjóri gaf flugvél heimild til þess að þvera flugbraut á sama tíma og hann gaf risaþotu flugtaksheimild.

Atvikið, sem er nú til rannsóknar af samgönguöryggisnefnd Ástralíu (ATSB), átti sér stað þann 14. nóvember sl. er Boeing 737-800 þota frá Virgin Australia var nýlent á braut 25 eftir flug frá Melbourne. Flugmennirnir voru látnir vita að Airbus A380 risaþota frá Singapore Airlines væri að hefja flugtaksbrun á braut 34L en þotan þurfti að fara yfir þá braut til þess að komast að flugstöðinni.

Risaþotan fékk flugtaksheimild en á sama tíma gáfu flugumferðarstjórar flugmönnunum á Boeing 737 þotunni heimild til að þvera braut 34L.

Fram kemur að flugmennirnir hafi séð risaþotuna koma aðvífandi í flugtaksbruninu en þegar þeir spurðu flugumferðarstjóra frekar út í heimildina til að þvera brautina var sú heimild dregin til baka og var þeim skipað að bíða við brautina.

Risaþotan byrjaði að hefja sig á loft rétt áður en hún kom að þeirri akbraut þar sem Boeing 737 þotan beið og er talið að um 300 metrar hafi skilið flugvélarnar að.

ATSB flokkar atvikið sem „alvarlegt flugatvik“ og er von á lokaskýrslu varðandi það á öðrum ársfjórðungi næsta árs.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga