flugfréttir
Mökuleiki á að Lufthansa taki yfir ITA Airways á næstu vikum
- Alvarlegar samningaviðræður sagðar í gangi um yfirtöku
Ítalska flugfélagið ITA Airways hóf starfsemi sína í október árið 2021 á sama tíma og Alitalia hætti starfsemi sinni
Ítalska flugfélagið ITA Airways er sagt eiga í alvarlegum samningaviðræðum við Lufthansa en Lufthansa Group er eitt af þeim örfáu aðilum sem hafa sýnt yfirtökunni áhuga á nýja flugfélaginu sem tók við af Alitalia fyrir um ári síðan.
Samkvæmt ítalska fjölmiðlinum Correre della Serra þá er haft eftir
óstaðfestum heimildum frá ítölsku ríkisstjórninni að verið er að undirbúa
undirritun samkomulags á yfirtöku Lufthansa Group á rekstri ITA Airways en þess má geta að skipafélagið MSC hefur dregið sig úr öllum frekar viðræðum.
Fram kemur að helsta samningsatriðið sem verið er að ræða um er hvort
Lufthansa muni vilja kaupa stóran hluta í ITA Airways eða hvor félagið
myndi taka yfir allan rekstur á flugfélaginu ítalska.
Í frétt Correre della Serra segir að viðræðurnar sé komnar á annað stigið
en bent er á að aðild ítölsku ríkisstjórnarinnar spili stór hlutverk þar sem flugfélagið
er í þeirra eigu og séu þeir að huga að sínum hagsmunum við söluna og ákveða
sín skilyrði ef til yfirtöku kemur.
ITA Airways er metið á milli 450 til 480 milljónir evra en í nóvember
setti ríkisstjórn Ítalíu 400 milljónir í rekstur félagsins til að auka lausafjárstöðu þess
en rekstur ITA Airways hefur átt undir högg að sækja líkt og Alitalia vegna
samkeppni frá lágfargjaldarfélögum á borð við Ryanair og Wizz Air.
Fram kemur að svirúm ríkisstjórnarinnar á Ítalíu til frekari fjárveitingar séu takmarkaðar
og sé komin töluverður þrýstingur á að selja rekstur ITA Airways og er
Lufthansa Group því eini aðilinn sem kemur til greina eins og staðan er í dag.
Flugfloti ITA Airways telur í dag 66 flugvélar en stjórn flugfélagsins stefnir á að
flotinn verði komin í 96 flugvélar fyrir lok ársins 2023.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.