flugfréttir

United leggur inn pöntun til Boeing í 200 þotur

- Panta 100 Dreamliner-þotur og 100 Boeing 737 MAX þotur

13. desember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 14:30

Um er að ræða eina stærstu breiðþotupöntun sem gerð hefur verið frá bandarísku flugfélagi

United Airlines hefur lagt inn pöntun til Boeing í 200 farþegaþotur og samanstendur pöntunin af eitt hundrað Dreamliner-þotum og 100 farþegaþotum af gerðinni Boeing 737 MAX.

Um er að ræða eina stærstu breiðþotupöntun sem gerð hefur verið frá bandarísku flugfélagi en United Airlines hefur einnig tryggt sér kauprétt á 100 Boeing 787 þotum til viðbótar.

Pöntunin í Boeing 737 MAX þoturnar samanstendur af 44 þotum sem félagið átti inni sem hluti af kauprétti og pantað félagið því 56 þotur til viðbótar. Þoturnar sem United Airlines hafði áður kauprétt á verða afhentar milli áranna 2024 og 2026 og hinar 56 verða afhentar frá 2027 til ársins 2028.

„Þessi pöntun staðfestir okkar forystu á markaðnum og skapar ný tækifæri fyrir viðskiptavini okkar, starfsfólk auk hlutahafa og hraðar áformum okkar um að tengja saman fleira fólk við fleiri staði um allan heim með bestu upplifun sem völ er á í háloftunum“, segir Scott Kirby, framkvæmdarstjóri United Airlines.

Með þessari pöntun og fyrri pöntunum þá á United Airlines von á að fá 700 nýjar þotur afhentar fyrir lok ársins 2032 sem þýðir að félagið á von á að fá tvær nýjar þotur afhentar vikulega og meira en þrjár þotur á viku eftir árið 2024.

Dreamliner-þoturnar munu leysa af hólmi eldri breiðþotur af gerðinni Boeing 767 og Boeing 777. - „Það verður leiðinglegt að sjá þessar flugvélar fara úr flotanum en það er komin tími til að huga að endalokum þeirra“, segir Gerry Laderman, fjármálastjóri United Airlines.

United Airlines á einnig inni pöntun í 45 breiðþotur hjá Airbus af gerðinni A350 en Laderman segir að United Airlines hafi náð samkomulagi við Airbus um að fresta þeim þotum um nokkur ár og er ekki von á þeirri fyrstu fyrr en í fyrsta lagi árið 2030.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga