flugfréttir

Vangoldnar bætur hjá Wizz Air og kvartanir stórt áhyggjuefni

- Segja Wizz Air „langversta“ flugfélagið með flestar kvartanir

19. desember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:42

Farþegaþotur Wizz Air á flugvellinum í Leeds í Bretlandi

Flugmálayfirvöld í Bretlandi hafa áhyggjur af fjölda kvartanna og útistandandi skulda á skaðabótagreiðslum hjá Wizz Air sem hafa hrannast upp frá því í sumar.

Flugáætlun Wizz Air varð fyrir miklum röskunum í sumar og var fjöldi flugferða sem flugfélagið þurfti að aflýsa eða fresta en félagið uppskar í kjölfar þessa miklar óvinsældir hjá farþegum

Fjöldi farþega hafa sakað flugfélagið um sein svör varðandi bætur sem þeir hafa átt rétt á segja bresk flugmálayfirvöld (CAA) að Wizz Air hafi komist á topplistann yfir „verstu flugfélögin“ hvað þetta varðar.

Fram kemur að Wizz Air hafi náð 811 kvörtunum á hverja milljón farþega sem jafngildir því að næstum 1 af hverjum þúsund farþegum hafi sent inn formlega kvörtun og farið fram á bætur en þess má gæta að næsta flugfélag á eftir Wizz Air uppskar varla helminginn af þeim fjölda er kemur að kvörtunum.

„Magnið sem hefur borist af kvörtunum varðandi Wizz Air er langt umfram það sem eðlilegt er hjá öðrum flugfélögum. Þetta ásamt seinkunum og hægt ferli er kemur að því að greiða bætur og fjöldi málaferla sem rata til dómstóla hefur er orðið áhyggjuefni hjá CAA“, segir Anna Bowles, yfirmaður yfir neytendadeild hjá flugmálayfirvöldum Bretlands.

Bowles segir að þeir hafi gert Wizz Air grein fyrir því að þessi hegðun er óásættanleg og er vonast til að þeir verði búnir að gera hreint fyrir sínum dyrum sem fyrst.

Bresk flugmálayfirvöld segja að Wizz Air hafi sent frá sér svar þar sem þeir harma þessa stöðu og eru þeir staðráðnir í að ganga á listann og afgreiða skaðabótagreiðslur fyrir jól.

„Við munum halda áfram að fylgjast með stöðunni. Þegar það er augljóst að flugfélag er að bregðast farþegum með þessum hætti þá hikum við ekki við að grípa til aðgerða“.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga