flugfréttir
American hættir samstarfi við Mesa Airlines
Canadair CRJ900 þota frá Mesa Airlines í litum American Eagle
American Airlines hefur náð samkomulagi um að hætta samstarfi við flugfélagið Mesa Airlines sem hefur annað áætlunarflug fyrir dótturfélagið American Eagle.
Ástæðan er sögð vera vegna vandamála með áreiðanleika hjá Mesa Airlines og mun
flugfélagið hætta að fljúga fyrir American Eagle frá og með apríl á næsta ári.
„Það hafa komið bæði upp fjárhagserfiðleikar og rekstarerfiðleikar hjá Mesa Airlines
á þessu ári sem hefur valdið okkur áhyggjum með hversu mikið við getum treyst
á samvinnuna og niðurstaðan var samkomulag um að best væri að binda endi á þetta
samstarf“, segir Derek Kerr, fjármálastjóri American Airlines.
Mesa hefur verið með 64 farþegaþotur af gerðinni CRJ900 sem hafa flogið undir
merkjum American Eagle en allar þoturnar eru teknar á leigu hjá Bombardier Services
og hefur þeim verið flogið frá Dallas/Fort Worth og Phoenix.
Í staðinn mun American Airlines fá flugfélögin Envoy Air, Piedmont Airlines og PSA Airlines
til að fylla í skarðið og verður síðasta áætlunarflugið á vegum Mesa Airlines flogið
þann 3. apríl árið 2023 á meðan flestar flugvélarnar verða teknar úr áætluninni í mars.
Mesa Airlines mun standa eftir með aðeins einn viðskiptavin sem er United Airlines
en flugfélagið hefur annast áætlunarflug fyrir United Express en fyrir þau flug
notar Mesa Airlines farþegaþotur af gerðinni Embraer E175.
Rekstur Mesa Airlines hefur gengið brösulega upp á síðkastið og var afkoma
félagsins, á níu mánaða tímabili til lok júní á þessu ári, neikvæð um 9.5 milljarða króna.
Eins og flest flugfélög vestanhafs og þá sérstaklega litlu svæðisflugfélögin („regional
carriers“) þá glímir Mesa Airlines við alvarlegan skort á flugmönnum en félagið hefur verið að vinna í því að fjárfesta í nýjum leiðum er kemur að þjálfun flugmanna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.