flugfréttir
SAS mun fljúga til New York frá Gautaborg og Álaborg
- Flogið verður með þotum af gerðinni Airbus A321LR
Airbus A321LR þota frá SAS (Scandinavian Airlines)
SAS (Scandinavian Airlines) stefnir á að hefja áætlunarflug yfir sumartímann til New York frá Gautaborg og Álaborg.
SAS ætlar að fljúga þrisvar sinnum í viku frá borgunum tveimur frá apríl á næsta ári
og verður flogið á Newark-flugvöllinn í New Jersey með þotum af gerðinni Airbus A321LR.
Erik Westman, varaformaður SAS, segir að flugfélagið sjái töluverða eftirspurn
í flugi til Bandaríkjanna frá minni borgum á Norðurlöndunum og segir hann A321LR
þotuna henta mjög vel fyrir slíkar flugleiðir.
SAS hefur hingað til eingöngu flogið til Bandaríkjanna frá höfuðborgunum Osló, Stokkhólmi
og frá Kaupmannahöfn og hefur félagið þá flogið á Newark-flugvöllinn en fyrir nokkrum
vikum tilkynnti félagið að SAS myndi bæta JFK flugvellinum við og mun flug á milli
Kaupmannahafnar og JFK flugvallarins hefjast í febrúar.
„Það er mikil eftirspurn eftir flugi til eins stærsta áfangastaðar í heimi og þetta eru góðar fréttir fyrir okkar svæði“, segir Elizabeth Axtelius hjá Swedavia, rekstaraðila flugvallarins í Gautaborg.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.