flugfréttir
Sogaðist inn í hreyfil á þotu á gamlársdag
Slysið átti sér stað klukkan 15:00 að staðartíma á Montgomery Regional flugvellinum í Alabama á gamlársdag
Flugvallarstarfsmaður lét lífið á gamlársdag er hann sogaðist inn í hreyfil á farþegaþotu frá American Airlines af gerðinni Embraer ERJ-175LR á flugvellinum í Montgomery í Alabama í Bandaríkjunum.
Verið var að undirbúa þotuna fyrir brottför til Dallas er starfsmaður, sem sér um að setja ferðatöskur um borð, endaði inn í hreyflinum sem var búið að ræsa og lést hann samstundis.
Aðrar heimildir greina þó frá því að flugvélin hafi verið nýlent eftir flug frá Dallas og var flugvélin nýkomin að hlaðinu þegar slysið átti sér stað.
„Það varð slys meðal eins starfsmanns hjá Piedmont Airlines á Montgomery-flugvellinum.
Hugur okkar er hjá fjölskyldu og ástvinum hans. Við höfum virkjað stuðningsáætlun
okkar til fjölskyldu hans og vina“, segir í tilkynningu frá Piedmont Airlines.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum (NTSB) hefur hafið rannsókn á slysinu og var Montgomery-flugvellinum lokað í nokkrar klukkustundir í kjölfarið og þá kemur fram að flugvélin hafi enn verið á jörðu niðri í dag, 2. janúar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.