flugfréttir
Boeing 737 fékk flugtaksheimild á meðan ökutæki var á brautinni
Skjáskot úr öryggismyndavél af Boeing 737 þotunni eftir að heimild var gefin fyrir flugtaki
Flugmálayfirvöld í Portúgal hafa gefið frá sér skýrslu er varðar atvik er flugumferðarstjóri gaf Boeing 737 þotu flugtaksheimild á sama tíma og flugvallarökutæki var á brautinni að sinna viðhaldi.
Atvikið átti sér stað á flugvellinum í borginni Porto þann 27. apríl árið 2021 og kemur fram að flugumferðarstjórinn hafi verið einn á vakt í 4 klukkustundir án þess að
taka sér hlé og sá hann bæði um turninn og aðflugsstjórnun.
Um var að ræða þotu af gerðinni Boeing 737-400 frá ASL Airlines Belgium sem hafði
fengið heimild fyrir flugtaki og vissu flugmennirnir ekki af ökutæki sem var
á hinum enda brautarinnar.
Það var ekki fyrr en að flugvallarstarfsmaður, sem ók ökutækinu, tók eftir mjög skæru
ljósi sem nálgaðist með tilheyrandi hávaða og lét hann flugturninn vita og sagði
flugumferðarstjórinn að hann þyrfti að yfirgefa brautina samstundis þar sem það
væri flugvél í flugtaki að nálgast.
Engin önnur samskipti höfðu átt sér stað á milli starfsmannsins og flugumferðarstjórans
fram að þessu eða frá því að starfsmaðurinn fékk heimild til að fara inn á brautina
til að sinna störfum sínum.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Portúgal segja að flugmennirnir á Boeing 737 þotunni
hafi ekki tekið eftir bílnum á brautinni fyrr en undir það síðasta en þá hafi þeir tilkynnt
um ljós á bíl framundan í vinstri kannti brautarinnar.
Talið er að flugvélin hafi tekið á loft í um 300 metra fjarlægð frá bílnum og hafi um
150 metrar aðskilið bílinn og flugvélina á lóðréttum ási.
Rannsakendur komust að því að flugumferðarstjórinn hafi verið að störfum í 4 tíma og var á þeim tíma mjög rólegt að gera og hafi hann steingleymt að það hafi verið starfsmaður á ökutæki á brautinni þegar loksins kom að því að stjórna flugumferð um brautina.
„Ef það hefði verið eitthvað samband reglulega á milli starfsmannsins og flugturnsins þá hefði það sennilega minnkað líkurnar á því að flugumferðarstjórinn hefði „gleymt“ því að það var ökutæki á brautinni“, segir í skýrslunni.
Þrátt fyrir að flugvöllurinn í Porto sé með viðvörunarkerfi sem varar við
brautarátroðningi þá hafi það ekki verið virkt í einhvern tíma og er talið að það hafi verið tekið úr sambandi sökum þess hversu oft það sendi frá sér falskar viðvaranir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.