flugfréttir

Gera ráð fyrir 4.2 milljörðum flugfarþegum árið 2023

- Spá meiri stöðugleika í fluginu í ár og meiri hagnaði

4. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 08:14

Þróun á fjölgun flugfarþega frá árinu 2014 til ársins 2022

Margir hagsmunaaðilar í flugiðnaðinum í heiminum, flugfélög og fyrirtæki sem koma að flugrekstri hafa lýst yfir þokkalegri bjartsýni varðandi árið 2023 og eru margir sem telja að flugið eigi eftir að ná sér fullkomnlega á strik í kjölfar þeirra ógæfu sem hefur dunið yfir sl. ár.

Segja má að sl. 2 ár hafi einkennst af ógæfu sem tengist heimsfaraldrinum, átökum, óvissu í efnahagsmálum auk annarra þátta en aðilar innan flugsins telja að nýtt ári eigi eftir að einkennast að meiri stöðugleika, færri erfiðum áskorunum og meiri hagnaði.

Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) gera ráð fyrir að flugfélögin eigi að mestu eftir að losna við öll áhrif af heimsfaraldrinum á fyrsta og öðrum ársfjórðungi ársins og halda ótrauð í átt að endanlegum bata frá því tímabili sem hófst í byrjun ársins 2020.

Á fyrsta ársfjórðungnum árið 2022 spáði IATA því að flugfélögin í heiminum myndu skila inn taprekstri upp á 6.9 milljarða Bandaríkjadali samanborið við 137.7 milljarða dala tap árið 2020 og 42 milljarða dala tap árið 2021.

IATA telur að árið 2023 verði fjöldi flugfarþega í heiminum búin að ná 85.5% af þeim fjölda farþega sem ferðuðust með flugi árið 2019

Nú þegar flugiðnaðurinn gerir sig kláran fyrir árið 2023 þá sjá sérfræðingur í flugmálum og samtök í flugiðnaðinum fram á að loksins komi fyrsta árið frá heimsfaraldrinum þar sem hægt verður að sjá fram á hagnað, skilvirkni og færri raskanir á flugi.

IATA telur að árið 2023 verði fjöldi flugfarþega í heiminum búin að ná 85.5% af þeim fjölda farþega sem ferðuðust með flugi árið 2019 sem þýðir að fjöldi flugfarþega á þessu ári verði um 4.2 milljarðar en árið 2019 voru flugfarþegar í heiminum 4.5 milljarðar en síðan voru þeir aðeins 1.8 milljarðar árið 2020.

Enn eru þó nokkur vandamál sem á eftir að yfirstíga en sérstaklega er tekið fram að þrátt fyrir að eftirspurn eftir flugi tók mikla uppsveiflu árið 2022 þá urðu mörg flugfélög fyrir miklu tapi vegna skorts á starfsfólki og þá sérstaklega á flugvöllum vegna allra þeirra uppsagna sem áttu sér stað árið 2020 sem varð til þess að aflýsa þurfti mörgum flugferðum.

Þróun á fjölgun flugfarþega frá árinu 2014 til ársins 2022

IATA telur að áskoranir er varðar skort á starfsfólki eigi eftir að verða auðveldari er líður á árið og en það verði þó misjafnt eftir svæðum og flugfélögum. Ef allt gengur upp hinsvegar í þeim efnum þá er talið að heildartekjur allra flugfélaga í heiminum árið 2023 eigi eftir að nema 779 milljörðum króna sem samsvarar yfir 112.176 milljörðum króna sem má að mesta leyti rekja til aukningu í eftirspurn eftir flugsætum.

Talið er að mestu umsvifin og aukning flugfarþega eigi eftir að verða í Norður-Ameríku og á eftir fylgir Evrópa og því næst Miðausturlönd. Mesta hagnaðaraukningin verður tilkomin vegna færri aflýstra flugferða og færri áskoranna vegna skorts á starfsfólki.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga