flugfréttir

Allar A340-600 breiðþotur Lufthansa á leið í loftið aftur

- Flugfélagið þýska sér fram á mikla eftirspurn í sumar í langflugi

6. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 12:12

Airbus A340-600 breiðþota frá Lufthansa

Lufthansa ætlar að dusta rykið af öllum Airbus A340-600 breiðþotunum en þoturnar voru settar í langtímageymslu við upphaf heimsfaraldursins árið 2020 og sá flugfélagið ekki fram á að þær myndu snúa aftur í háloftin undir sínum merkjum.

Lufthansa sér fram á að eftirspurn eftir flugi í sumar verði það mikil að flugfélagið nái ekki að koma til móts við hana nema að hafa allar þær breiðþotur í umferð sem völ er á.

Lufthansa hefur tíu A340-600 breiðþotur í flotanum og verða þær settar aftur í umferð í vor og munu þær sinna langflugi til fjarlægra áfangastaða og verða fimm staðsettar í Frankfurt og hinar fimm í Munchen.

Sex af þotunum tíu eru í dag merktar í geymslu en tvær eru á Teruel-flugvellinum á Spáni, ein í Frankfurt, ein í Munchen og þá er ein á Ninoy Aquino flugvellinum í Manila á Filippseyjum.

Allar Airbus A340-600 þoturnar eru útbúnar fyrsta flokks lúxusfarrými sem telur 8 sæti og eru þoturnar þær einu að undanskilinni Boeing 747-8 þotunum og A380 risaþotunum sem koma með glæsilegasta farrýmið sem Lufthansa skartar.

Þar að auki hafa þoturnar 44 sæti á Business farrými, 32 á Premium Economy og svo 213 sæti á almennu farrými.













  fréttir af handahófi

Lufthansa pantar 22 nýjar breiðþotur frá Boeing og Airbus

2. mars 2023

|

Lufthansa Group hefur lagt inn pöntun til bæði Boeing og Airbus í 22 nýjar breiðþotur að andvirði 7.5 milljarða Bandaríkjadala sem samsvarar 1.070 milljarða króna.

Boeing 777 þveraði braut á meðan 737 var í flugtaki á sömu braut

16. janúar 2023

|

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) og bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú atvik sem átti sér stað á John F. Kennedy flugvellinum í New York er tvær flugvélar voru mjög nálægt því að re

Líf að glæðast á ný á Southend flugvellinum í London

26. janúar 2023

|

Áætlunarflug er að hefjast að nýju um London Southend flugvöllinn á Englandi en easyJet hefur tilkynnt að félagið ætli að hefja beint flug frá Southend til Amsterdam þann 24. maí í vor.

  Nýjustu flugfréttirnar

Starfsemi Asia Pacific stöðvað vegna annmarka í þjálfun flugmanna

21. mars 2023

|

David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

Bluebird Nordic stefnir á flugrekstarleyfi í Slóvakíu

21. mars 2023

|

Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

Flugmaður hjá BA lést á hóteli rétt fyrir brottför til London Heathrow

21. mars 2023

|

Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

Flair höfðar mál gegn flugvélaleigu

20. mars 2023

|

Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

City Airlines nýtt dótturfélag Lufthansa

20. mars 2023

|

Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

AirBaltic tekur á leigu fjórar Airbus A320 þotur

20. mars 2023

|

Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

Bannað að þjónusta rússneskar Boeing-þotur í Tyrklandi

17. mars 2023

|

Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

FAA fer fram á 25 tíma upptöku úr hljóðritum

17. mars 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.

Atlas Air varar við skorti á framboði í fraktfluginu

15. mars 2023

|

Bandaríska fraktflugfélagið Atlas Air telur að alvarlegur skortur á stórum fraktflugvélum blasi við í heiminum á næstu árum.

Útafbrautaratvik algengasta tegund slysa meðal einkaþotna

15. mars 2023

|

Atvik þar sem flugvél fór út af flugbraut var algengasta tegund atvika og slysa meðal einkaþotna árið 2022 og það annað árið í röð.

';

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá