flugfréttir
Allar A340-600 breiðþotur Lufthansa á leið í loftið aftur
- Flugfélagið þýska sér fram á mikla eftirspurn í sumar í langflugi
Airbus A340-600 breiðþota frá Lufthansa
Lufthansa ætlar að dusta rykið af öllum Airbus A340-600 breiðþotunum en þoturnar voru settar í langtímageymslu við upphaf heimsfaraldursins árið 2020 og sá flugfélagið ekki fram á að þær myndu snúa aftur í háloftin undir sínum merkjum.
Lufthansa sér fram á að eftirspurn eftir flugi í sumar verði það mikil að flugfélagið nái ekki
að koma til móts við hana nema að hafa allar þær breiðþotur í umferð sem völ er á.
Lufthansa hefur tíu A340-600 breiðþotur í flotanum og verða þær settar aftur í umferð í vor
og munu þær sinna langflugi til fjarlægra áfangastaða og verða fimm staðsettar í Frankfurt
og hinar fimm í Munchen.
Sex af þotunum tíu eru í dag merktar í geymslu en tvær eru á Teruel-flugvellinum á Spáni, ein
í Frankfurt, ein í Munchen og þá er ein á Ninoy Aquino flugvellinum í Manila á Filippseyjum.
Allar Airbus A340-600 þoturnar eru útbúnar fyrsta flokks lúxusfarrými sem telur 8 sæti og eru þoturnar
þær einu að undanskilinni Boeing 747-8 þotunum og A380 risaþotunum sem koma með glæsilegasta farrýmið sem Lufthansa
skartar.
Þar að auki hafa þoturnar 44 sæti á Business farrými, 32 á Premium Economy og svo 213 sæti
á almennu farrými.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.