flugfréttir
Fundu lík tveggja laumufarþega á þotu í Kólumbíu

Dreamliner-þota frá kólumbíska flugfélaginu Avianca á flugvellinum í Bogota
Lík tveggja ungra manna fundust í hjólarými á farþegaþotu frá kólumbíska flugfélaginu Avianca sl. föstudag er þotan var í viðhaldsskoðun.
Fram kemur að þotan hafi verið að gangast undir viðhaldsskoðun á flugvellinum í Bogota í Kólumbíu
þegar starfsmenn í flugskýlinu komu auga á tvö lík í hjólarými vélarinnar.
Flugfélagið Avianca hefur sent frá sér yfirlýsingu með samúð til fjölskyldna mannanna og er tekið fram að þótt að flugmenn
athugi ástand flugvélar fyrir hvert flug að þá liggi ábyrgðin hjá yfirvöldum þar sem öryggisverðir eigi
að gæta að óviðkomandi komist ekki inn á flugvallarsvæði.
Fram kemur að yfirvöld hafi náð að bera kennsl á mönnunum tveimur en þeir voru
15 og 20 ára gamlir og af afrískum uppruna.
Ekki fundust nein skílríki á þeim eða neinir pappírar en annar þeirra var með á sér gjaldeyri
frá Dóminíska lýðveldinu og bendir það til þess að þeir hafi farið um borð sem laumufarþegar
þann 3. janúar þar sem flugvélin flaug seinast til landsins á þeim degi.
Flugvélin gekkst seinast undir viðhaldsskoðun þann 27. desember sl. og hefur henni síðan þá verið
flogið til Sau Paulo í Brasilíu og til Santiago í Chile.



18. janúar 2023
|
Nýtt flugfélag í Mexíkó hefur lagt inn pöntun til bandaríska fyrirtækisins Eviation í þrjátíu rafmagnsflugvélar af gerðinni Alice en um er að ræða samkomulag sem gert var í gær.

21. mars 2023
|
Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

27. desember 2022
|
Samgönguráðuneyti Bandaríkjanna segir að það sé ekki viðunandi sá fjöldi flugferða sem að flugfélagið Southwest Airlines aflýsti vegna kuldakastsins sem reið yfir vestanhafs yfir jólin.

21. mars 2023
|
David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

21. mars 2023
|
Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

21. mars 2023
|
Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

20. mars 2023
|
Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

20. mars 2023
|
Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

20. mars 2023
|
Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

17. mars 2023
|
Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

17. mars 2023
|
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.