flugfréttir

Losa sig við síðustu A320 þotuna

- Stefna á að hafa eingöngu þotur frá Boeing í flotanum

10. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 22:25

Ein af þeim Airbus A320 þotum sem Alaska Airlines fékk í flotann eftir samrunann við Virgin America

Alaska Airlines hefur tekið síðustu Airbus A320 þotuna úr flotanum en félagið stefnir á að verða aftur eingöngu með þotur frá Boeing fyrir lok þessa árs.

Alaska Airlines hefur aldrei pantað neinar þotur frá Airbus í 78 ára sögu flugfélagsins en félagið fékk Airbus-þoturnar í flotann er Alaska Airlines tók yfir rekstur Virgin America árið 2017 og sameinuðust flugfélögin undir merkjum Alaska Airlines ári síðar.

Það var í október árið 2019 sem að Alaska Airlines byrjaði að losa sig við fyrstu Airbus A320 þotuna en félagið fékk 52 þotur til sín úr flota Virgin America af gerðinni Airbus A320, A320neo og A319 sem voru málaðar í litum Alaska Airlines.

Í mars í fyrra tilkynnti flugfélagið að til stæði að hraða því ferli að taka Airbus-þoturnar úr flotanum auk þess sem til stæði að hætta með De Havilland Dash 8 Q400 flugvélarnar.

Alaska Airlines hefur samt sem áður ennþá ellefu þotur í flotanum af gerðinni Airbus A321neo en til stendur að þær verða allar farnar út flotanum fyrir lok þessa árs.

Í dag hefur Alaska Airlines 204 Boeing 737 þotur af mismunandi tegundum en 61 er af gerðinni Boeing 737-800, tólf af gerðinni Boeing 737-900, 79 af gerðinni Boeing 737-900ER, ellefu af gerðinni Boeing 737-700 og þá hefur félagið fengið 38 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 9.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga