flugfréttir

Sækja um leyfi til að skila einni A330 og einni A320neo þotu

- Taka hinsvegar á blautleigu þrjár Boeing 737 þotur frá JetTime

12. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 20:56

Airbus A330-300 breiðþota frá SAS á flugvellinum í Kaupmannahöfn

SAS (Scandinavian Airlines) hefur sótt um leyfi til gjaldþrotadómsstóls í Bandaríkjunum um að fá að skila einni Airbus A330-300 breiðþotu til eiganda sinna auk einnar A320neo þotu.

Fram kemur að ekki er þörf fyrir flugvélarnar tvær í flotanum eins og er og segir SAS að ef þær yrðu áfram í flotanum myndi það hafa í för með sér óþarfa kostnað.

SAS sótti um Chapter 11 gjaldþrotameðferð í júlí í fyrra en þá hafði félagið yfir 100 flugvélar í flotanum og þar af voru 63 teknar á rekstarleigu og þá átti SAS sjálft tuttugu af þeim flugvélum á meðan aðrar voru á leigu með öðru fyrirkomulagi.

SAS hefur í dag 143 flugvélar og þar af þrettán breiðþotur en alengasta flugvélategundin í flotanum er Airbus A320neo og hefur félagið fengið 56 slíkar afhentar og þá telur breiðþotuflotinn átta Airbus A330 þotur og fimm Airbus A350-900 þotur.

Hinsvegar þá ætlar SAS að taka á blautleigu þrjár Boeing 737 þotur yfir sumartímann frá danska flugfélaginu JetTime og ætlar félagið að nota þær frá mars fram til október.

SAS hefur verið að ná sér á strik eftir heimsfaraldurinn og stefnir félagið á að efla leiðarkerfið sitt enn frekar og hefur félagið kynnt 20 nýjar flugleiðir í sumar og mun SAS fljúga um 5.000 flugferðir á viku á komandi sumri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga