flugfréttir

Lufthansa gerir tilboð í ítalska flugfélagið ITA Airways

18. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 15:21

Ef tilboð Lufthansa verður samþykkt þykir líklegt að rekstur ITA Airways verði innleiddur inn í rekstur Lufthansa Group

Lufthansa Group hefur fallist á að kaupa hlut í ítalska flugfélaginu ITA Airways og hefur flugfélagasamsteypan gert tilboð með það markmið að eignast síðar fullan hlut í flugfélaginu ítalska.

Tilraunir ítölsku ríkisstjórnarinnar til þess að selja ITA Airways eða hlut í félaginu hafa staðið yfir allt frá því að flugfélagið var stofnað í október árið 2021 en á sama tíma heyrði ríkisflugfélagið Alitalia sögunni til.

Viðræður við nokkra aðila hafa staðið yfir í töluverðan tíma en viðræum við Air France-KLM og Delta Air Lines var slitið sl. haust og var Lufthansa eftir það eini aðilinn sem kom sterklegast til greina.

„Stefnan er að standa við tilboðið um kaup á litlum hluta í flugfélaginu með þann möguleika að kaupa upp allan hlutinn síðar“, segir í yfirlýsingu frá Lufthansa.

Ef tilboð Lufthansa verður samþykkt verður næsta skref að hefja viðræður um möguleikann á að innleiða rekstur ITA Airways inn í Lufthansa Group en fyrst þarf að fá grænt ljós frá stjórnvöldum ef tilboðið verður samþykkt.

Lufthansa Group á nú þegar flugfélög á borð við Austrian Airlines, Brussel Airlines, Swiss International Air Lines og ítalska flugfélagið Air Dolomiti.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga