flugfréttir

Missti athyglina í aðflugi og hafnaði í snjóskafli í lendingu

20. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 08:18

Mynd af flugvélinni eftir atvikið í skýrslu NTSB

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hefur gefið út skýrslu varðandi atvik sem átti sér stað í Illinois í Bandaríkjunum er lítil flugvél af gerðinni Beech Bonanza P35 hafnaði í snjóskafli yfir framan brautina í lendingu.

Atvikið átti sér stað í janúar árið 2021 á flugvellinum í bænum Poplar Grove og var 78 ára flugmaður sá eini sem var um borð.

Flugvélin lenti of snemma eða fyrir framan brautarenda og er haft eftir flugmanninum að á lokastefnu hafi hann sé að flugvél, sem lenti á undan honum, hafi verið kyrrstæð á brautinni.

Flugmaðurinn segir að hann hafi verið annars huga þar sem hann var of mikið að einblína á hvort að hin flugvélin væri að fara yfirgefa brautina í stað þess að fljúga vélinni.

Niðurstaða NTSB var sú að einbeiting flugmannsins hafi orðið fyrir truflun og láðist honum að viðhalda viðunandi aðflugsferli á lokastefnu sem varð til þess að hann lenti of snemma og endaði í snjóskafli.

Flugmanninn sakaði ekki en fram kemur að hann hafi verið með einkaflugmannsskírteini og 6.196 heildarflugtíma að baki og þar af 1.107 flugtíma á þessa flugvélategund og hafði hann flogið 4.3 flugtíma sl. 90 daga fyrir atvikið.













  fréttir af handahófi

Flugmenn Delta samþykkja 34 prósenta launahækkun

1. mars 2023

|

Flugmenn Delta Air Lines hafa samþykkt með miklum meirihluta nýjan kjarasamning sem felur í sér launahækkun upp á allt að 34 prósent.

Mitsubishi tilkynnir um endalok SpaceJet þotunnar

7. febrúar 2023

|

Japanski risafyrirtækið Mitsubishi Heavy Industries hefur tilkynnt um að þróun og framleiðslu á SpaceJet þotunni hefur formlega verið hætt en þotan var þróuð og smíðuð af dótturfyrirtækinu Mitsubish

Allar A340-600 breiðþotur Lufthansa á leið í loftið aftur

6. janúar 2023

|

Lufthansa ætlar að dusta rykið af öllum Airbus A340-600 breiðþotunum en þoturnar voru settar í langtímageymslu við upphaf heimsfaraldursins árið 2020 og sá flugfélagið ekki fram á að þær myndu snúa

  Nýjustu flugfréttirnar

Starfsemi Asia Pacific stöðvað vegna annmarka í þjálfun flugmanna

21. mars 2023

|

David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

Bluebird Nordic stefnir á flugrekstarleyfi í Slóvakíu

21. mars 2023

|

Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

Flugmaður hjá BA lést á hóteli rétt fyrir brottför til London Heathrow

21. mars 2023

|

Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

Flair höfðar mál gegn flugvélaleigu

20. mars 2023

|

Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

City Airlines nýtt dótturfélag Lufthansa

20. mars 2023

|

Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

AirBaltic tekur á leigu fjórar Airbus A320 þotur

20. mars 2023

|

Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

Bannað að þjónusta rússneskar Boeing-þotur í Tyrklandi

17. mars 2023

|

Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

FAA fer fram á 25 tíma upptöku úr hljóðritum

17. mars 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.

Atlas Air varar við skorti á framboði í fraktfluginu

15. mars 2023

|

Bandaríska fraktflugfélagið Atlas Air telur að alvarlegur skortur á stórum fraktflugvélum blasi við í heiminum á næstu árum.

Útafbrautaratvik algengasta tegund slysa meðal einkaþotna

15. mars 2023

|

Atvik þar sem flugvél fór út af flugbraut var algengasta tegund atvika og slysa meðal einkaþotna árið 2022 og það annað árið í röð.

';

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá