flugfréttir
Uzbekistan Airways freistar þess að selja gamlar þotur úr flotanum
- Byrja á að reyna að selja tvær Boeing 757 og tvær 767 þotur

Boeing 767-300ER breiðþota frá Uzbekistan Airways
Flugfélagið Uzbekistan Airways gerir nú tilraun til þess að setja gamlar Boeing-þotur á sölu auk gamalla þotna sem smíðaðar voru á tímum Sovíetríkjanna og hefur flugfélagið fengið til sín ráðgjafa frá ráðgjafarfyrirtæki í Bretlandi.
Uzbekistan Airways hefur hægt og bítandi verið að endurnýja flugflotann sinn og
ætlar því að freista þess að selja meðal annars tvær Boeing 757-200 þotur
og tvær Boeing 767-300ER breiðþotur.
Áhugasamir hafa frest til 23. febrúar til þess að koma með tilboð í þoturnar fjórar
sem tilheyra fyrsta söluflokknum en í næsta flokki verða settar á sölu fimm
Ilyushin Il-76TD fraktþotur, sex Ilyushin Il-114 flugvélar auk tveggja Il-114 flugherma og
tvær Mil Mi-8 þyrlur.
Boeing 757-200 þoturnar sem um ræðir eru báðar smíðaðar árið 1999 og Boeing 767-300ER
þoturnar árið 2003 og 2004 og eru þær allar fjórar með hreyflum frá Pratt & Whitney.
Breska fyrirtækið ACC Aviation var fengið til þess að aðstoða við söluna úr hópi sex ráðgjafarfyrirtækja en ACC Aviation sérhæfir sig í söluferli í flugiðnaðinum, ráðgjöf
og leigu á flugvélum.



15. mars 2023
|
Atvik þar sem flugvél fór út af flugbraut var algengasta tegund atvika og slysa meðal einkaþotna árið 2022 og það annað árið í röð.

6. mars 2023
|
Taka ætti í gagnið sérstaka áritun í flugskírteini og viðeigandi þjálfun fyrir þá flugmenn sem fljúga með fallhlífastökkvara.

2. janúar 2023
|
Flugvallarstarfsmaður lét lífið á gamlársdag er hann sogaðist inn í hreyfil á farþegaþotu frá American Airlines af gerðinni Embraer ERJ-175LR á flugvellinum í Montgomery í Alabama í Bandaríkjunum.

21. mars 2023
|
David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

21. mars 2023
|
Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

21. mars 2023
|
Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

20. mars 2023
|
Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

20. mars 2023
|
Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

20. mars 2023
|
Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

17. mars 2023
|
Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

17. mars 2023
|
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.