flugfréttir
Horizon hættir með De Havilland Dash 8

De Havilland Dash 8-400 flugvél frá Horizon Air
Horizon Air, dótturfélag Alaska Air Group, hefur formlega hætt með De Havilland Dash 8-400 flugvélarnar sínar og var síðasta áætlunarflugið flogið fyrr í þessum mánuði.
Til stóð að hætta með Dash 8 flugvélarnar síðar á þessu ári en ákveðið var að
flýta því ferli og hefur Horizon Air því í dag eingöngu flugvélar af gerðinni
Embraer 175 og eru 33 slíkar þotur í flotanum.
Á sama tíma hefur systurfélagið Alaska Airlines hætt með allar þær Airbus A320
þotur sem félagið tók yfir við samruna félagsins við Virgin America árið 2018 en
félagið hefur enn tíu Airbus A321neo þotur í flotanum og stendur til að þær
fari einnig úr flotanum síðar á þessu ári.
Horizon Air hefur haft De Havilland Dash 8-400 flugvélarnar í flotanum frá því árið
2001 en fyrsta flugvélin frá De Havilland Canada kom í flota Horizon Air
árið 1985 og var hún af gerðinni De Havilland Canada Dash 8-100.
Í dag er það kanadíska flugfélagið WestJet Encore sem hefur flestar De Havilland Dash 8-400 flugvélar en það félag hefur 47 flugvélar af þeirri gerð í flota sínum.



26. janúar 2023
|
Frá og með deginum í dag, 26. janúar, er aftur komin á flugumferðarstjórn yfir Sómalíu í kjölfar þess að flugupplýsingasvæðið Mogadishu FIR var endurvakið með innleiðingu innviða og úrbótum á öryggi

13. janúar 2023
|
Boeing 737 MAX þoturnar eru komnar aftur í loftið í Kína eftir tæpa fjögurra ára kyrrsentingu þar í landi en Kína var fyrsta landið til þess að kyrrsetja þoturnar í mars árið 2019 í kjölfar tveggja

12. febrúar 2023
|
Flugmenn hjá Hawaiian Airlines hafa samþykkt nýjan kjarasamning sem felur í sér 32 prósenta launahækkun yfir fjögurra ára tímabil.

21. mars 2023
|
David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

21. mars 2023
|
Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

21. mars 2023
|
Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

20. mars 2023
|
Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

20. mars 2023
|
Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

20. mars 2023
|
Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

17. mars 2023
|
Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

17. mars 2023
|
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.