flugfréttir

Líf að glæðast á ný á Southend flugvellinum í London

- EasyJet ætlar að auka umsvif sín á Southend í sumar

26. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 21:49

Frá London Southend flugvellinum

Áætlunarflug er að hefjast að nýju um London Southend flugvöllinn á Englandi en easyJet hefur tilkynnt að félagið ætli að hefja beint flug frá Southend til Amsterdam þann 24. maí í vor.

Þegar best lét voru yfir 2 milljónir farþega sem flugu um völlinn árið 2019 en árið 2020 datt sá fjöldi niður í 400.000 farþega á ári.

Árið 2021 hættu bæði Wizz Air og Ryanair að fljúga um London Southend og dróst farþegafjöldinn þá niður í 100.000 farþega það árið ásamt því að easyJet flaug aðeins 12 flug á viku þaðan til Faro, Malaga og Mallorca yfir sumartímann.

Nú hinsvegar hefur stjórn flugvallarins gert samning við easyJet um flug til nokkurra borga á næstu mánuðum og mun flugumferðin því aukast um 30 prósent í sumar.

EasyJet mun byrja að fljúga aftur um Southend þann 29. mars með flugi til Malaga og því næst verður flogið til Amsterdam, Faro og Mallorca.

London Southend var eitt sinn þriðji stærsti flugvöllur Bretlands á sjöunda áratugnum en í fyrra fóru aðeins 5% af flugumferðinni um flugvöllinn sem var árið 2019 og þá dróst flugumferð enn meira saman er Amazon hætti að fljúga fraktflug á nóttunni um völlinn í september 2022.

Stjórn flugvallarins segir að til standi að laða að fleiri flugfélög með lágum flugvallargjöldum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga