flugfréttir
Air France-KLM pantar fjórar Airbus A350F fraktþotur

Tölvugerð mynd af Airbus A350F fraktþotunni
Air France-KLM hefur lagt inn staðfesta pöntun í fjórar fraktflugvélar af gerðinni Airbus A350F en þoturnar munu fara í flota dótturfélagsins Martinair Holland og verða þær staðsett á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam.
Með nýju Airbus A350F þotunum getur Martinair Holland losað sig við eldri fraktþotur
af gerðinni Boeing 747-300BCF og -400ERF.
Adriaan den Heijer, framkvæmdarstjóri Air france KLM Cargo, segir að með þessari pöntun
sé verið að taka stórt skref fram á við er kemur að hagkvæmni, sparneytni auk þess sem
flugvélarnar verða 50% hljóðlátari en þær sem félagið hefur í flotanum í dag.
Það var fyrst árið 2007 sem að Airbus tilkynnti að til stæði að bjóða upp á fraktútgáfu af
A350-900 þotunni eða 8 árum áður en A350 kom á markað er Qatar Airways tók við fyrstu þotunni.
Það var síðan í júlí árið 2021 sem að Airbus staðfesti að framleiðsla á A350F myndi hefjast
en sú breyting varð á að ákveðið var að byggja hana á A350-1000 þotunni og er áætlað að hún
komi á markað árið 2025.



10. janúar 2023
|
Alaska Airlines hefur tekið síðustu Airbus A320 þotuna úr flotanum en félagið stefnir á að verða aftur eingöngu með þotur frá Boeing fyrir lok þessa árs.

26. janúar 2023
|
Áætlunarflug er að hefjast að nýju um London Southend flugvöllinn á Englandi en easyJet hefur tilkynnt að félagið ætli að hefja beint flug frá Southend til Amsterdam þann 24. maí í vor.

6. mars 2023
|
Taka ætti í gagnið sérstaka áritun í flugskírteini og viðeigandi þjálfun fyrir þá flugmenn sem fljúga með fallhlífastökkvara.

21. mars 2023
|
David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

21. mars 2023
|
Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

21. mars 2023
|
Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

20. mars 2023
|
Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

20. mars 2023
|
Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

20. mars 2023
|
Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

17. mars 2023
|
Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

17. mars 2023
|
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.