flugfréttir
Rannsaka atvik er Boeing 777 fór næstum út af braut í lendingu

Boeing 777-300ER þota frá Air New Zealand
Flugmálayfirvöld á Nýja-Sjálandi rannsaka nú atvik þar sem farþegaþota af gerðinni Boeing 777-300ER fór næstum því út af braut í lendingu á flugvellinum í borginni Auckland en mikil rigning var er þotan lenti.
Atvikið átti sér stað sl. föstudag og var um að ræða þotu frá Air New Zealand og var mikil bleyta
á flugbrautinni auk hliðarvinds.
Skömmu eftir að hjólin snertu brautina tóku flugmennirnir eftir því að vélin lét undarlega að stjórn og sveigði til hægri
og vinstri og fór hún af miðlínu í lendingarbruninu en flugmennirnir náðu á endanum að beina henni í beina
stefnu og yfirgáfu brautina og héldu að flugstöðvarbyggingunni.
Fram kemur að sex flugbrautarljós hafi skemmst auk þess sem skemmdir urðu á hjólastelli
þotunnar auk þess sem eitt dekk sprakk.
Engan sakaði af þeim sem voru um borð í vélinni en þotan var að koma frá Melbourne
í Ástralíu.
Skömmu eftir atvikið hélt úrhellið áfram sem varð til þess að flugferðum var aflýst og seinkaði
mörgum flugferðum auk þess sem fljóð urðu sumstaðar í borginni.



3. febrúar 2023
|
British Airways hefur sent út ströng fyrirmæli til flugmanna og annarra áhafnarmeðlima er kemur að því að deila myndum á samfélagsmiðlum og sjálfum („selfie“) á miðla á borð við Facebook, Instagram

21. mars 2023
|
David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

16. janúar 2023
|
Engin hefur fundist á lífi eftir að farþegaflugvél af gerðinni ATR 72-500 fórst skömmu fyrir lendingu er hún var í aðflugi að Pokhara-flugvellinum í Nepal á sunnudagsmorgun.

21. mars 2023
|
David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

21. mars 2023
|
Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

21. mars 2023
|
Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

20. mars 2023
|
Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

20. mars 2023
|
Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

20. mars 2023
|
Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

17. mars 2023
|
Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

17. mars 2023
|
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.