flugfréttir

Þrýsta á Tyrki til að hætta flugi til Rússlands með Boeing-þotum

- Vara einnig við afleiðingum að selja varahluti til Rússlands

30. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 17:36

Boeing 737-800 þota frá tyrkneska flugfélaginu Pegasus Airlines

Bandarísk stjórnvöld setja nú þrýsting á Tyrki til þess að stöðva allt áætlunarflug til Rússlands með Boeing-þotum en einnig hvetja þau flugfélög í Hvíta-Rússlandi til að gera slíkt hið sama.

Samkvæmt heimildum þá hafa ráðamenn í Washington varað Tyrki við refsingum og sektum ef ekki er komið til móts við þessar óskir og jafnframt er tekið fram að viðskiptaþvingunum yrði jafnvel beitt á Tyrki.

Þá eru Tyrkir einnig beðnir um að hætta að hafa viðkomu í Rússlandi til þess að taka eldsneyti og einnig beðnir um að stöðva allan útflutning á varahlutum fyrir vestrænar flugvélar til Rússlands.

Thea D. Rozman Kendler, ritari viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna, áminnti Tyrki í opinberri heimsókn sinni til Tyrklands í desember sl. að veita Rússum slíka þjónustu og viðskipti væri brot á viðskiptabanni gegn Rússlandi en þess má geta að önnur lönd á borð við Suður-Afríku hafa íhugað að leyfa Rússum að fljúga til Jóhannesaborgar sem endurspeglar að mörg ríki taka viðskiptabanninu ekki alvarlega.

Frá og með 1. október í fyrra hafa rússnesk flugfélög flogið yfir 2.000 flugferðir til Tyrklands með Boeing-þotum en þess má geta að níu flugfélög, Aeroflot, Pobeda, Rossiya Airlines, Azimuth, Azur Air, Ikar, IrAero, Red Wings og UTair, fljúga í dag 54 áætlunarflug á milli Tyrklands og Rússlands á meðan Turkish Airlines, Corendon Airlines og Pegasus Airlines fljúga einnig á milli landanna.













  fréttir af handahófi

Hætta flugi um þrjá flugvelli vegna skorts á flugmönnum

9. janúar 2023

|

American Airlines ætlar sér að draga sig til hlés í þremur mismunandi borgum vestanhafs er kemur að stuttum flugleiðum vegna skorts á þeim flugmönnum sem fljúga minni flugvélum og tengja saman smærri

FedEx að hætta með MD-10F

12. janúar 2023

|

Vörufluttningaflugfélagið FedEx Express er að öllum líkindum hætta að nota McDonnell Douglas MD-10F fraktþoturnar en til stóð að hætta með þær snemma á þessu ári.

Líf að glæðast á ný á Southend flugvellinum í London

26. janúar 2023

|

Áætlunarflug er að hefjast að nýju um London Southend flugvöllinn á Englandi en easyJet hefur tilkynnt að félagið ætli að hefja beint flug frá Southend til Amsterdam þann 24. maí í vor.

  Nýjustu flugfréttirnar

Starfsemi Asia Pacific stöðvað vegna annmarka í þjálfun flugmanna

21. mars 2023

|

David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

Bluebird Nordic stefnir á flugrekstarleyfi í Slóvakíu

21. mars 2023

|

Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

Flugmaður hjá BA lést á hóteli rétt fyrir brottför til London Heathrow

21. mars 2023

|

Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

Flair höfðar mál gegn flugvélaleigu

20. mars 2023

|

Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

City Airlines nýtt dótturfélag Lufthansa

20. mars 2023

|

Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

AirBaltic tekur á leigu fjórar Airbus A320 þotur

20. mars 2023

|

Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

Bannað að þjónusta rússneskar Boeing-þotur í Tyrklandi

17. mars 2023

|

Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

FAA fer fram á 25 tíma upptöku úr hljóðritum

17. mars 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.

Atlas Air varar við skorti á framboði í fraktfluginu

15. mars 2023

|

Bandaríska fraktflugfélagið Atlas Air telur að alvarlegur skortur á stórum fraktflugvélum blasi við í heiminum á næstu árum.

Útafbrautaratvik algengasta tegund slysa meðal einkaþotna

15. mars 2023

|

Atvik þar sem flugvél fór út af flugbraut var algengasta tegund atvika og slysa meðal einkaþotna árið 2022 og það annað árið í röð.

';

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá