flugfréttir
Bretar innleiða aftur hefðbundna reglu um nýtingu á plássum
- 80 prósent lágmarksnýting á lendingarplássum tekin upp í mars

Frá Heathrow-flugvellinum í London
Samgönguráðuneytið í Bretlandi hefur afnumið allar undanþágur sem gerðar voru á nýtingu og notkun á lendingar- og afgreiðsluplássum á breskum flugvöllum vegna heimsfaraldursins.
Þetta þýðir að hefðbundnar notkunarreglur eru aftur í gildi sem þýðir að flugfélög verða að nýta að minnsta kosti 80 prósent
af plássunum sínum í sumar til þess að tryggja sér þau áfram árið 2024.
80/20 reglan tekur formlega í gildi þann 26. mars næstkomandi en reglugerðin heimilar að hægt verður að afhenda
til baka 5% af plássunum áður en sumarvertíðin hefst til að aðstoða við skipulag á „raunhæfri tímaáætlun“ fyrir önnur
flugfélög og hliðra til ef flugferðum er aflýst á síðustu stundu.
Í upphafi heimsfaraldursins var hliðrar til og þurftu flugfélög aðeins að nýta helmingin af plássunum en í fyrra
var reglugerðinni breytt upp í 70% nýtingu þar sem dregið hafði úr áhrifum vegna faraldursins.



4. janúar 2023
|
Lion Air Group ætlar sér að bæta við allt að 80 nýjum farþegaþotum við flugflota dótturfélaga sinna á þessu ári.

3. febrúar 2023
|
Kínverska flugfélagið Hainan Airlines hefur hafið á ný áætlunarflug með Boeing 737 MAX þotunum og er félagið því annað flugfélagið í Kína til þess að byrja að fljúga þeim á ný eftir kyrrsetningu þeir

24. febrúar 2023
|
Spænsku flugfélaginu í eigu IAG (International Airlines Group) skiluðu bestri afkomu árið 2022 af þeim félögum sem eru einnig dótturfélög flugfélagasamsteypunnar.

21. mars 2023
|
David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

21. mars 2023
|
Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

21. mars 2023
|
Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

20. mars 2023
|
Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

20. mars 2023
|
Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

20. mars 2023
|
Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

17. mars 2023
|
Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

17. mars 2023
|
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.