flugfréttir

Þess vegna varð Flyr gjaldþrota

- Flyr fór fram á að verða tekið til gjaldþrotaskipta í gær

1. febrúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 14:26

Boeing 737-800 þota frá norska flugfélaginu Flyr

Dagar norska lágfargjaldafélagins Flyr eru taldir en flugfélagið fór í gær fram á gjaldþrotaskipti eftir innan við 600 daga starfsemi.

Flyr var stofnaði í miðjum heimsfaraldrinum árið 2020 af Erik G. Braathen, stofnanda norska flugfélagsins Braathens sem hætti starfsemi sinni árið 2004, en ástæða gjaldþrots Flyr er sögð vera sú að stærstu hluthafar félagsins ákváðu að hætta við allar frekari fjárfestingar í félaginu.

Flyr hóf starfsemi sína í júní árið 2021 og hóf áætlunarflug með fimm Boeing 737 þotur og var sætanýting félagsins um 54% að meðaltali við lok ársins 2021.

Takmarkanir og aðgerðir vegna nýrra afbrigða kórónaveirunnar gerðu Flyr mjög erfitt fyrir árið 2021 og byrjaði flugfélagið fljótlega að safna fé til þess að fjármagna erfiðan rekstur en norska fjölmiðlafyrirtækið TV Gruppen setti meðal annars 3.5 milljarða króna í rekstur Flyr við upphaf þess árs.

Leiðarkerfi Flyr í desember 2022

Flyr hélt áfram að stækka og tvöfaldaðist flugflotinn upp í 10 þotur en á sama tíma og eftirspurn eftir flugsætum fór að aukast í fyrra við lok heimsfaraldursins, fór verð á þotueldsneyti að hækka og flaug félagið fljótt inn í fjárhagserfiðleika þrátt fyrir að sætanýtingin var farin að nálgast 90 prósent.

Taprekstur tók við árið 2022 og september í fyrra eftir að sumarvertíðinni lauk voru skuldir Flyr komnar í 1 milljarð norskra króna eða sem samsvarar 14 milljörðum króna.

Á síðasta ársfjórðungnum í fyrra fór Flyr að brenna upp lausafé á gríðarlegum hraða og dróst það saman úr helming eða úr 4.2 milljörðum króna niður í 2.1 milljarð en þá hafði dregið úr eftirspurn eftir flugsætum yfir vetrartímann á sama tíma og samkeppni við önnur flugfélög í Skandinavíu var mikil.

Flyr brást við með því að draga saman seglin í leiðarkerfinu bæði í Skandinavíu og í Evrópu og ákvað félagið aðeins að fljúga til helstu áfangastaðanna innan Evrópu.

Flyr gerði í nóvember í fyrra tilraun til þess að fjármagna áframhaldandi rekstur upp á 7.5 milljarða króna en þær tilraunir fóru út um þúfur þar sem fjárfestar voru farnir að halda að sér höndum.

Flyr var stofnað árið 2020

Félagið ákvað að fara aðrar leiðir og var ákveðið að hækka söfnunarmarkmiðið upp í tæpa 10 milljarða króna en þær aðferðir gengu ekki upp. Því næst var skipt um stjórnarformann félagsins, leitast var leiða til að endurskipuleggja leigusamninga á flugvélum og þá var sótt um leyfi til að hefja leiguflug til Bandaríkjanna til þess að bæta upp fyrir lágt framboð yfir veturinn sem er að líða.

Til þess að halda rekstrinum gangandi áfram var ljóst að fjármögnun upp á tæpa 10 milljarða króna var nauðsynleg til þess að standa við leigu á helming flugflotans fram á sumarið en á þeim tímapunkti voru fjárfestum hætt að lítast á blikuna og voru farnir að draga sig til hlés

Síðasta hálmstráið var að fjármagna 4.6 milljarða til þess að tryggja að minnsta kosti lágmarksflugflota og semja við flugvélaleigufyrirtæki en áfram voru fjárfestar áhugalausir og dræm viðskipti með hlutabréf í Flyr í norsku kauphöllinni sannfærðu aðra hluthafa og fjárfesta um að nú væri komin tími til að hætta að setja meira fé í rekstur flugfélagsins.

Flestar flugvélarnar í flota Flyr voru teknar á leigu frá bandaríska fyrirtækinu Air Lease sem varð félaginu út um sex Boeing 737 MAX þotur og eina Boeing 737-800 þotu á meðan önnur flugvélaleiga leigði flugfélaginu fimm Boeing 737-800 þotur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga