flugfréttir

Síðasta Dash 8 Q400 flugvélin farin úr flota airBaltic

- Hafa núna eingöngu Airbus A220 þotur í flotanum

1. febrúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 14:53

AirBaltic fékk sína fyrstu Bombardier Dash 8 Q400 flugvél árið 2010

Flugfélagið airBaltic hefur formlega hætt með Bombardier Dash 8 Q400 flugvélarnar eftir 12 ára notkun en þeirri síðustu hefur verið skilað til þeirrar flugvélaleigu sem átti vélarnar.

Í yfirlýsingu frá airBaltic í dag segir að síðasta vélin hafi yfirgefið flugvöllinn í Riga og var henni flogið í tvo tíma til Billund á Jótlandi þar sem eigandinn tók við henni sem er flugvélaleigan Nordic Aviation Capital.

AirBaltic tók við sinni fyrstu Bombardier Dash 8 Q400 flugvél í maí árið 2020 og sjö fylgdu í kjölfarið sama árið en þremur árum síðar var félagið með 12 slíkar skrúfuþotur í rekstri.

Um 11 milljónir farþega flugu með Dash 8 Q400 flugvélum airBaltic á 10 ára tímabili og fóru flugvélarnar yfir 222.000 flugferðir á þeim tíma en félagið gerði hlé á notkun vélanna við upphaf heimsfaraldursins árið 2020.

Í dag er airBaltic formlega orðin flugrekandi sem hefur eingöngu Airbus A220 þotur í flotanum en félagið er komið með 39 slíkar þotur og er von á ellefu til viðbótar.

Flugfélagið fagnaði því nýlega að A220 þoturnar hafa verið í flotanum í sex ár en fyrsta áætlunarflug airBaltic með Airbus A220 var flogið þann 14. nóvember árið 2016.













  fréttir af handahófi

Starfsemi Asia Pacific stöðvað vegna annmarka í þjálfun flugmanna

21. mars 2023

|

David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

Boeing gerir hlé á afhendingum á Dreamliner-þotum

24. febrúar 2023

|

Boeing hefur ákveðið að fresta afhendingum aftur á nýjum Dreamliner-þotum.

Flybe aftur gjaldþrota

28. janúar 2023

|

Breska lágfargjaldarfélagið Flybe er hætt flugresktri enn og aftur, aðeins tæpu ári eftir að reksturinn var endurvakinn með nýjum eigendum eftir að flugfélagið varð gjaldþrota árið 2020.

  Nýjustu flugfréttirnar

Starfsemi Asia Pacific stöðvað vegna annmarka í þjálfun flugmanna

21. mars 2023

|

David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í fe

Bluebird Nordic stefnir á flugrekstarleyfi í Slóvakíu

21. mars 2023

|

Íslenska fraktflugfélagið Bluebird Nordic ætlar að sækja um flugrekstarleyfi í Slóvakíu og auka með því umsvif sín á meginlandi Evrópu.

Flugmaður hjá BA lést á hóteli rétt fyrir brottför til London Heathrow

21. mars 2023

|

Flugmaður hjá British Airways fékk hjartaáfall og lést skömmu áður en hann átti að mæta ásamt áhöfninni út á flugvöll í Egyptalandi til að fljúga Airbus A321 þotu félagsins til London Heathrow.

Flair höfðar mál gegn flugvélaleigu

20. mars 2023

|

Kanadíska flugfélagið Flair Airlines hefur höfðað mál gegn flugvélaleigunni Airborne Capital eftir að flugvélaleigan lét gera upptækar fjórar Boeing 737 MAX farþegaþotur í flota félagsins vegna vangol

City Airlines nýtt dótturfélag Lufthansa

20. mars 2023

|

Lufthansa vinnur nú hörðum höndum að því að ýta úr vör nýju dótturflugfélagi sem nefnist City Airlines.

AirBaltic tekur á leigu fjórar Airbus A320 þotur

20. mars 2023

|

Lattneska flugfélagið airBaltic mun taka tímabundið í notkun þotur af gerðinni Airbus A320.

Bannað að þjónusta rússneskar Boeing-þotur í Tyrklandi

17. mars 2023

|

Ríkisstjórn Tyrklands hefur ákveðið að banna flugvöllum í landinu að þjónusta Boeing-þotur í flota rússneskra flugfélaga og fá þær því ekki að taka eldsneyti eða tilheyrandi þjónustu.

FAA fer fram á 25 tíma upptöku úr hljóðritum

17. mars 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að innleiða reglugerð sem fer fram á að hljóðriti um borð í flugvélum varðveiti upptökur í 25 klukkustundir áður en ritað er yfir þær aftur.

Atlas Air varar við skorti á framboði í fraktfluginu

15. mars 2023

|

Bandaríska fraktflugfélagið Atlas Air telur að alvarlegur skortur á stórum fraktflugvélum blasi við í heiminum á næstu árum.

Útafbrautaratvik algengasta tegund slysa meðal einkaþotna

15. mars 2023

|

Atvik þar sem flugvél fór út af flugbraut var algengasta tegund atvika og slysa meðal einkaþotna árið 2022 og það annað árið í röð.

';

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá