flugfréttir
Boeing 737 slökkviliðsflugvél brotlenti í Ástralíu
- Tveir flugmenn sluppu með minniháttar meiðsl
Slökkviliðsflugvélin var í eigu fyrirtækisins Coulson Aviation
Sérhæfð slökkviliðsflugvél af gerðinni Boeing 737-300 brotlenti í morgun í Ástralíu er hún var að berjast við skógarelda.
Tveir flugmenn voru um borð í flugvélinni og náðu þeir að koma sér úr flakinu og eru sagðir
heilir á húfi en slysið átti sér stað milli bæjanna Ravensthorpe og Hopetoun í Vestur-Ástralíu
klukkan 8:40 í morgun að íslenskum tíma.
Björgunarþyrla fór á vettvang og kom flugmönnunum til bjargar og voru þeir fluttir á sjúkrahús
í Ravensthorpe og eru meiðsl þeirra sögð minniháttar.
Ekki er vitað hvað olli því að flugvélin brotlenti en samgönguöryggisnefnd Ástralíu rannsakar nú
tildrög slyssins.
Flugvélin, sem var í eigu Coulson Aviation og gat borið 15.000 tonn af vatni, var ómissandi í baráttu
við skógarelda en flugvélin var að berjast við elda sem kviknuðu eftir að eldingu laust niður
í skóginum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.